Djúpið keppir um Evrópsku áhorfendaverðlaunin - þú getur kosið
�?hætt er að segja að kvikmynd Baltasars Kormáks Djúpið hafi átt góðu gengi að fagna, innanlands sem utan. Fín frammistaða leikaranna, ekki síst �?lafs Darra í hlutverki Guðlaugs Friðþjófssonar í skelfilegu sjóslysinu og einstöku sjósunds-afrekinu ásamt framúrskarandi kvikmyndatökunni, og gerð myndarinnar almennt, hafa hvarvetna hlotið mikið lof.
Nú er komið að áhorfendum að kjósa, beint og milliliðalaust í kosningu um Evrópsku áhorfendaverðlaunin 2013 en Djúpið er tilnefnd til þeirra.
�?að eru 11 kvikmyndir sem keppa nú um People�??s Choice Awards eða Evrópsku áhorfendaverðlaunin 2013. Djúpið er ein þeirra mynda og eru framleiðendur að vonum stoltir af árangri myndarinnar og vonast eftir hressilegri þátttöku íslenskra kvikmyndaunnenda í kosningunni.
Allir geta kosið �?? og um leið átt möguleika á að vinna ferð til Berlínar þegar Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í byrjun desember.
Hér er slóðin �?? þar sem hægt er að kjósa til 31.október n.k.
Djúpið sem valin var mynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni í febrúar hefur verið sýnd vítt og breitt um heiminn á árinu og hlotið margvíslegar viðurkenningar. Myndin kemur út á DVD eftir tvo daga, fimmtudaginn 31.október.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.