Einhugur býður upp á fræðslu með HARTS
Fræðslan fer fram í Höllinni

Einhugur, félag einhverfra og aðstandenda þeirra í Vestmannaeyjum, fær HARTS í heimsókn til Eyja dagana 31. ágúst til 2. september. Í heimsókninni verður boðið upp á umfangsmikla fræðslu fyrir nemendur, starfsfólk skóla og fjölskyldur.

HARTS vinnur að fræðslu og verkefnum með áherslu á taugafjölbreytileika, skólatengsl, aðgengi og inngildandi menntun. Markmiðið er meðal annars að auka skilning á fjölbreytileika og stuðla að vellíðan og þátttöku nemenda.

Meðal verkefna HARTS er Skóli fyrir öll, fræðsluverkefni sem fyrirtækið hefur þróað og nú er meðal annars verið að innleiða í grunnskólum Hafnarfjarðar. Verkefnið byggir á faglegri þekkingu og rannsóknum, meðal annars á skólatengslum, og felur í sér fræðslu og vinnu með nemendum, starfsfólki og fjölskyldum.

Að baki HARTS stendur Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir, eigandi fyrirtækisins. Hún er með MS-gráðu í Health Education and Behaviour og BA-gráðu í menntavísindum. Auk þess er hún Certified Health Education Specialist (CHES®).

Nýjustu fréttir

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.