Eitt tilboðanna dæmt ógilt
Kubbur Sorp
Tilboð Kubbs var metið ógilt þar sem ekki var gefið einingarverð í alla liði tilboðskráar.

Í síðasta mánuði var greint frá því að bæjarráð Vestmannaeyja hefði samþykkt samhljóða að taka tilboði Terra í sorphirðu og förgun. Venjan er sú að fagráðið fjalli fyrst um mál sem þessi, sem í þessu tilfelli er framkvæmda- og hafnarráð og í kjölfarið fer málið fyrir bæjarráð.

Spurður um ástæður þess að svo var ekki í þessu tilfelli segir Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs að sorpmálin heyri undir framkvæmda- og hafnarráð en fjárhagslegar skuldbindingar heyri undir bæjarráð og olli röð funda því að þetta koma svona fram.

Tilboð Kubbs dæmt ógilt

Málið var svo tekið fyrir hjá framkvæmda- og hafnarráði nú í vikunni og fór Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri yfir tilboðin þar. Fram kemur í fundargerðinni að þrjú tilboð hafi borist, en eitt þeirra var dæmt ógilt.

Tilboðin tvö sem eftir stóðu og getið er á um í fundargerðinni eru annars vegar frá Terra, sem hljóðaði upp á kr. 242.334.492,- og hins vegar frá Íslenska Gámafélaginu upp á kr. 339.556.000,. Kostnaðaráætlun var kr. 262.680.500,-.

Þá segir að bæjarráð hafi fyrir sitt leyti samþykkt tillögu framkvæmdastjóra að taka tilboði Terra og lagði framkvæmdastjóri einnig til við framkvæmda- og hafnarráð að taka tilboði Terra. Ráðið samþykkti fyrir sitt leyti tilboð Terra og fól framkvæmdastjóra að ganga frá samningi.

Synjað um að fá tilboðin

Eyjafréttir óskuðu eftir að fá tilboðin send en því var hafnað og sagði Brynjar Ólafsson í samtali við Eyjafréttir að tilboðsskrá innihaldi viðkvæmar fjárhagsupplýsingar sem óheimilt sé að birta opinberlega samkvæmt lögum um opinber innkaup. Spurður um hvers vegna tilboði Kubbs hafi verið hafnað segir Brynjar að tilboðið hafi verið metið ógilt þar sem ekki var gefið einingarverð í alla liði tilboðskráar.

 

Nýjustu fréttir

Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.