Í dag undirrituðu Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs og Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs samninga við styrkþegar vegna verkefna sem hlutu styrk.
Í apríl síðastliðnum auglýsti bæjarráð Vestmannaeyja í tengslum við síðari úthlutun ársins á styrkjum vegna ,,Viltu hafa áhrif” eftir umsóknum. Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfa, leiktækja á opnum svæðum og göngustíga.
Listamenn, einstaklingar og félagasamtök verða að vera skráð í Vestmannaeyjum og verkefni/viðburður þarf að fara fram í Vestmannaeyjum, segir í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda.
Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og spennandi að vanda. Óskar Vestmannaeyjabær öllum styrkþegum til hamingju. Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni sem hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni.
- Hreinsunardagur ÍBV Knattspyrnu – 500.000 kr.
Um er að ræða hreinsunardag ÍBV í maí/júní þar sem til stendur að hreinsa allt nærumhverfi félagsins. Í ár á að bæta um betur með því að mála, sparsla og gróðursetja. Með þessu skapast góð stemning þar sem fjölskyldur koma og eiga góðan dag saman, ásamt því að leggja sitt af mörkum til umhverfisins.
- Knattspyrnuskóli ÍBV – 350.000 kr.
Um er að ræða knattspyrnuskóla fyrir yngstu iðkendur ÍBV síðustu tvær vikurnar fyrir Þjóðhátíð þegar engar æfingar koma til með að eiga sér stað. Knattspyrnuskólinn fer fram utandyra á knattspyrnuvöllum bæjarins og möguleiki er á að vera innandyra ef veðurskilyrði verða ekki góð. Skólastjóri verður yfir skólanum og munu leikmenn og þjálfarar ÍBV stjórna æfingum og miðla af þekkingu sinni. Í lok skólans fá allir þátttakendur gjöf.
- Töfrar og tækifæri – Listasmiðja fyrir börn 500.000 kr.
Um er að ræða námskeið í listum af ýmsu tagi, s.s. kvikmyndagerð, handritaskrif, dans, myndlist, hljómsveitarnámskeið o.s.frv. Þátttakendur munu velja sér áherslu og fá kynningu á hinum ýmsu formum lista og skapandi hugsunar. Markmið listasmiðjunnar er að opna augu barna fyrir eigin hæfileikum og skapa vettvang fyrir þau við að fást við listir. Að listamenn í Eyjum séu sýnilegir börnum og kynni þeim störf sín og hvernig þeir náðu árangri í sinni listsköpun. Stefnt er að hafa listasmiðjuna í tvær vikur, fyrir Goslokahátíð.
- Golfnámskeið fyrir konur – 500.000 kr.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka golfiðkun meðal kvenfólks í Vestmannaeyjum á öllum aldri. Boðið verður upp á opna tíma ( ókeypis ) fyrir allar konur í Vestmannaeyjum frá tímabilinu 26. maí – 6. júní. GV mun útvega alla aðstöðu og þau tæki sem þarf til þess að halda slíkt námskeið. Fyrirlestur fer fram í golfskála GV þar sem kynning verður á starfsemi GV og hvað golf getur verið heilsueflandi og jafnframt skemmtileg íþrótt óháð kyni og aldri. Kennarar og umsjónarmenn verkefnis eru eftirtaldir : Karl Haraldsson yfirkennari, Hafdís Snorradóttir formaður kvennanefndar GV, Jón Valgarð Gústafsson, Kristgeir Orri Grétarsson og Júlíus Hallgrímsson kennarar.
- Námskeið fyrir konur og eldriborgara í pílu – 560.000 kr.
Starfsemi Billiard- og pílufélagsins hefur vaxið hratt undanfarin misseri en boðið er upp á aðstöðu, æfingar og keppni bæði í pílukasti og snóker. Haldið verður sérstakt námskeið fyrir konur á öllum aldri í pílukasti og landsliðsþjálfari á vegum Pílusambands Íslands fenginn til að leiðbeina. Einnig verður haldið námskeið í pílukasti fyrir eldri borgara með sama þjálfara. Þá munu félagsmenn og þau börn og ungmenni sem stundað hafa æfingar hjá félaginu fá þjálfun hjá viðkomandi þjálfara.
- Útilistasýning og steinamálun Lista og- og menningarfélags Vestmannaeyja – 150.000 kr.
Lista- og menningarfélagið mun standa fyrir útilistasýningu og steinamálun í sumar og á Goslokum á Stakkagerðistúni. Félagið hefur tvisvar sinnum haldið sýningu eins og þessa. Þetta er menningarviðburður sem er skemmtilegur og gefur félaginu tækifæri til að vinna að því að fagna Goslokum með bæjarbúum og gestum. Einnig ætlar félagið að vera búið að dreifa máluðum steinum um bæinn sem bæði listamenn og börn hafa málað hjá félaginu á árinu. Gerður verður einhverskonar ratleikur fyrir börnin.
- Sveitapiltsins draumur – 300.000 kr.
Sveitapiltsins draumur, vortónleikar Karlakórs Vestmannaeyja sem haldnir verða 16. maí 2025. Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni eru hefðbundnari karlakóralög í bland við annað léttmeti.
- Allra veðra von – 400.000 kr.
Á árunum 2002-2008 var árlega haldin hljómsveitakeppnin „Allra veðra von“ en þar stóð öllum hljómsveitum kostur á að taka þátt, einu skilyrðin voru að hljómsveitirnar þyrftu að vera með frumsamið efni. Endurreisn verkefnisins varð að veruleika þann 12. október síðastliðinn þar sem sex hljómsveitir tóku þátt í keppninni auk þriggja gestahljómsveita. Tilgangur keppninnar er að auka enn frekar menningarlíf Vestmannaeyja og að gefa hljómsveitum, óháð aldri og kyni, tækifæri til þess að koma sér á framfæri á stóru sviði með góðum hljóð og ljósabúnaði og fyrir stóran hóp af fólki. Keppnin mun fara fram laugardaginn 13. september í Höllinni í Vestmannaeyjum.
- Tónleikar Kórs Landakirkju – 300.000 kr.
Kór Landakirkju hefur verið leiðandi í flutningi kirkjutónlistar sem og í flutningi sígildrar tónlistar í Eyjum. Það eru liðin 28 ár síðan síðasta stórverkið var flutt í Vestmannaeyjum. Nú stendur það til bóta og stefnir Kór Landakirkju á að flytja Sálumessu eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré. Kórinn hefur fengið til liðs við sig Karlakór og Kvennakór Vestmannaeyja ásamt tveimur einsöngvurum. Meginmarkmið tónleikanna er að auðga tónlistarlífið í Eyjum og bjóða uppá sígilda tónlist sem heyrist alltof lítið af í Eyjum. Tónleikarnir verða samtvinnaðir minningarstund sem er alltaf haldinn á þessum messudegi. Þar er kveikt á kertum fyrir alla þá sem hafa verið jarðsungnir frá Landakirkju á síðastliðnu ári. Tónleikagestum verður gert kleift að kveikja á kerti til minningar um horfna ástvini.
- Jólaskógur Dýravinafélags Vestmannaeyja – 350.000 kr.
Búa á til jólaskóg í desember í skóginum við Löngulá sem er við aðstöðu dýraþjónustunnar. Lýsa á skóginn upp, gera aðstöðu þar sem hægt er að setjast niður og fá sér kakó og vöfflur sem Dýravinafélagið mun selja í fjáröflunarskyni fyrir félagið. Stefnt er að því að fá jólasveina til að koma í heimsókn, útbúa lítinn ratleik um skóginn og fleira. Markmiðið er að gera skemmtilega upplifun fyrir fjölskyldur á þessum frábæra tíma, kynna um leið félagið og sýna aðstöðuna sem það hefur upp á að bjóða.
- Jólahvísl – 300.000 kr.
Frá árinu 2016 hefur Hvítasunnukirkjan haldið tónleika fyrir jólin sem kallaðir eru Jólahvísl. Hugsunin með tónleikunum er að bjóða fólki ókeypis á hugljúfa tónleika sem minna alla á friðarboðskap jólanna og þar með gefa öllum tækifæri til að sækja jólatónleika óháð efnahag.