Breiðablik hefur ráðið Eyjamærina Tönju Tómasdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins. Tanja er dóttir þeirra Fanneyjar Bjarkar Ásbjörnsdóttur og Tómasar Jóhannessonar.
Tanja er lögfræðingur að mennt og hefur undanfarin misseri stundað nám við forystu og stjórnun samhliða vinnu. Tanja kemur frá TM tryggingum þar sem hún hefur starfað frá 2016 meðal annars við lögfræðiþjónustu og viðskiptaþróun.
Tanja hlaut réttindi sem umboðsmaður knattspyrnumanna árið 2014 fyrst íslenskra kvenna og hefur unnið félagsstörf á vegum íþróttahreyfingarinnar til dæmis verið í stjórn Leikmannasamtaka Íslands, varamaður í samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ og var kjörin dómari í dómstól ÍSÍ árið 2023.
Tanja tekur við keflinu af Eysteini Pétri Lárussyni sem gegndi starfinu í ellefu ár.
Eftirtektarverður metnaður
„Það er mikill fengur að hafa fengið Tönju til starfa fyrir félagið. Menntun hennar, metnaður og fjölbreytt reynsla mun nýtast félaginu vel en auk þess býr hún yfir öflugri samskiptahæfni sem gerir hana að kröftugum fulltrúa félagsins,“ sagði Ásgeir Baldursson, formaður Breiðabliks, í tilkynningu á fréttasíðu félagsins.
„Metnaður Tönju á íþróttastarfi er eftirtektarverður, hún var fyrst íslenskra kvenna til að afla sér réttinda sem umboðsmaður knattspyrnumanna, hún hefur stundað fræðiskrif um samspil íþrótta og lögfræði og látið sér félagsstörf íþróttahreyfingarinnar varða. Framtíðarsýn og metnaður Tönju fyrir Breiðablik er í samræmi við sýn aðalstjórnar og höfum við miklar væntingar til samstarfsins,“ sagði Ásgeir.
Mikill heiður
„Það er mér mikill heiður að ganga til liðs við Breiðablik og starfa með því öfluga fólki sem kemur að öllum deildum félagsins. Íþróttir eru mitt aðaláhugamál og hefur það alltaf verið ákveðinn draumur að starfa á því sviði. Ég er því spennt að takast á við þau verkefni sem felast í áframhaldandi uppbyggingu og sókn þessa frábæra félags,“ sagði Tanja í fréttatilkynningu frá félaginu.