Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Úr leiknum á Hásteinsvelli í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta mátti þola 0-3 tap, gegn Breiðablik, í níundu umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld. 

Breiðablik náði forystunni snemma leiks þegar Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti fyrirgjöf á Líf Joostdóttir Van Bemmel sem kláraði framhjá Guðnýju Geirsdóttir, markverði ÍBV. 

Blikar komust í 0-2 á 19. mínútu leiksins. Sunna Rún Sigurðardóttir átti þá fyrirgjöf inn á teig ÍBV og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir stangaði boltann í netið. Ólöf Sigríður var aftur á ferðinni fjórum mínútum síðar þegar hún skoraði aftur með skalla eftir fyrirgjöf frá Líf Joostdóttir Van Bemmel. Staðan 0-3 í hálfleik.

Fyrirliði ÍBV, Avery Vanderven, komst næst því að skora fyrir Eyjakonur í síðari hálfleik þegar hún náði að pota boltanum í átt að marki Blika en þær björguðu á línu. Olga Sevcova átti einnig fína skot tilraun frá vítateignhorninu en boltinn rétt fram hjá markinu. Engin mörk voru skoruð í síðari hálfleik. Lokatölur leiksins 0-3.

ÍBV eru eftir níu leiki í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig. Blikar eru á toppnum með 21 stig, tveimur stigum á undan FH en þær spila á morgun gegn Val.

Úrslit kvöldsins:

ÍBV 0 – 3 Breiðablik
0-1 Líf Joostdóttir van Bemmel (‘8 )
0-2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (’19 )
0-3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (’23 )

Þór/KA 2 – 0 Þróttur R.

19:15 Stjarnan – Fram

 

 

 

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.