Víst er að verðbréfasalarnir náðu ekki þeim árangri sem þeir væntu. Aðgerð þeirra setti hins vegar í gang atburðarás átaka um eignarhald í félaginu.
Áhlaup Landsbankans
�?að kom nefnilega í ljós, þegar einn hluthafi hringdi í annan hluthafa í Eyjum og greindi frá upphringingunni frá Landsbankanum, að sá hafði líka fengið nákvæmlega eins erindi símleiðis úr höfuðborginni! Og þegar menn fóru að bera betur saman bækur sínar kom í ljós að hringt hafði verið úr Landsbankanum í fjölda hluthafa á sama tíma með sams konar tilboð í hlutabréfin í VSV. �?ar með virtist liggja ljóst fyrir að bankinn hafði skipulagt einhvers konar skyndiáhlaup til að safna eignarhlutum í VSV hjá fjölda hluthafa á sama augnablikinu í þeim tilgangi að gefa hluthöfum ekki tóm til að ráðgast innbyrðis um það sem kynni að vera að gerast.
Í fyrstu vissu menn í Eyjum ekki í hverra þágu áhlaup Landsbankans væri en þegar leið á daginn fékkst staðfest að bankinn væri að bjóða í hlutabréf Vinnslustöðvarinnar fyrir hönd bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona frá Rifi (eigenda Brims hf.). Félög í eigu þeirra og þeir sjálfir eiga samanlagt ríflega 30% í Vinnslustöðinni. Hjálmar er í stjórn VSV en Guðmundur í varastjórn. �?arna var með öðrum orðum blásið til átaka um eignarhald og forræði í VSV. Og vel að merkja, minnihlutaeigendurnirnir þurftu ekki að bæta miklu við sig til að hafa meira vald á fyrirtækinu en meirihlutaeigendur félagsins kærðu sig um. �?rjú prósent hlutafjár til viðbótar myndu þannig færa minnihlutanum í eigendahópnum umtalsvert meiri ítök og betri valdastöðu í félaginu en hann hefur nú.
Í viðtali við Guðmund segist hann ekki standa á bak við tilboð Landsbankans að öðru leyti en því að hann bauð í hlut Lífeyrissjóðsins. Hann viðurkennir aftur á móti að það hafi þeir bræður gert til að styrkja stöðu sína innan félagsins.
Meirihlutinn bregst við
Viðbrögð heimamanna létu ekki á sér standa og sunnudaginn 15. apríl var boðað til fundar nokkurra lykilhluthafa í Eyjum þar sem gengið var munnlega frá samkomulagi eigenda 50,04% hlutafjár um �?stjórnun og rekstur Vinnslustöðvarinnar hf.�?
Fulltrúar hluthafanna og lögmenn þeirra sátu síðan yfir því í um hálfan sólarhring að ganga frá formsatriðum. Um þrjúleytið aðfararnótt mánudags 16. apríl var hluthafasamkomulagið undirritað og tilkynning þar að lútandi send Kauphöllinni til birtingar að morgni dags. �?ar fylgdi með að aðstandendur samkomulagsins myndu gera öðrum hluthöfum tilboð um að kaupa hluti þeirra í VSV, í samræmi við ákvæði laga um hlutabréfaviðskipti. Sömuleiðis lýsti hluthafahópurinn þeim vilja sínum að afskrá félagið í Kauphöllinni.
Umfjöllunin birtist í heild sinni í Fréttum á morgun.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst