Eyjamenn komnir áfram í bikarnum
Karlalið ÍBV er komið í 16 liða úrslit Eimskipsbikarsins eftir 28:29 sigur á Víkingum í Víkinni í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur og mjög spennandi en Víkingar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13. Pétur Pálsson, línumaðurinn sterki var atkvæðamestur hjá ÍBV, skoraði níu mörk en undir lokin varði Kolbeinn Arnarson, markvörður ÍBV mikilvægt skot sem kom í veg fyrir að Víkingar jöfnuðu metin. ÍBV teflir því fram tveimur liðum í 16 liðar úrslitum, aðalliðinu sem komst áfram í kvöld og B-liðinu, en B-lið Gróttu gaf leikinn gegn B-liði ÍBV sem komst því án fyrirhafnar áfram.

Nýjustu fréttir

Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.