Á morgun, miðvikudaginn 4. ágúst, mun Flugfélagið Ernir taka við áætlunarflugi milli Eyja og Reykjavíkur. Af því tilefni er Vestmannaeyingum boðið til samkomu í flugstöðinni í Vestmannaeyjum milli 17:00 og 18:00. Hægt verður að skoða flugvélar sem notaðar verða í áætlunarfluginu ásamt því að hitta forsvarsmenn félagsins og fá upplýsingar um þá þjónustu sem verður í boði.