Finn fyrir meiri frið og samstöðu og víða sólstafir og sólarglettur

Mér finnst reyndar undarlegt til þess að hugsa að ár sé liðið frá því ég sat og strauk kúlu mína til þess að spá fyrir um komandi ár fyrir Fréttir. Í huganum gæti það hafa verið fyrir nokkrum vikum síðan en tíminn flýgur nú áfram að mér finnst. Alveg ótrúlegt en satt og það sem meira er að þrátt fyrir að mér finnist tíminn líða svona hratt þá hefur heilmargt og mikið gerst á árinu.

Gigtin hverfur í Eyjaloftinu
�?g sagði í spá minni síðast að árið yrði þokkalegt fyrir Eyjamenn og að tónninn yrði jákvæðari þegar á árið liði og ég held að það hafi gengið eftir í stórum dráttum. Já, ég held að þegar horft er um öxl þá hafi árið bara verið þokkalegt þó að auðvitað hefði ég sem gömul Eyjasál viljað sjá vöxt og viðgang Eyjanna meiri.
�?g gerði mér ferð til Eyja aftur sl. sumar eins og ég gerði árið áður því ég fann eftir þá ferð mína að ég þarf á því að halda að anda að mér Eyjaloftinu oftar en ég hef leyft mér að gera frá því ég flúði árið 1973 og ég held að það hafi bara gert mér gott. Einhvern veginn hefur það þau áhrif á mig, þessi fáu skipti sem ég kem til Eyja, að gigtin, sem annars gerir mér ógagn alla daga, hreinlega hverfur á meðan ég dvel í Eyjunum mínum.
Hvort sem það er vegna þess að ég gleymi henni, þar sem ég er svo ánægð þegar ég kemst á æskustöðvarnar, eða vegna einhverra annarra orsaka veit ég ekki en sambandið sem ég næ í Eyjum er engu líkt og auðvitað rifjast upp æskuminningar frá þessum gömlu góðu og hjartað slær óneitanlega hraðar á köflum þegar rótað er í minningabankanum.
Mér fannst andinn betri í Eyjum sl. sumar en árið áður þegar ég kom til Eyja og það er góðs viti því að ég er næm á árur og anda. �?g fann fyrir meiri frið og samstöðu og það voru víða sólstafir og sólarglettur við sundin blá þó að auðvitað væru einnig þykkir bakkar á ferð og bræluhljóð bærust að eyrum mínum. �?g var þó ánægð að sjá glitský á ferð með þessum þungbrýndu bökkum. Glitskýin vita á gott í mínum huga.
Fréttafólkið hefur enn eitt árið beðið mig um að kíkja í kúluna mína til að segja fyrir um komandi ár. �?g veit ekki hvort mikið er orðið að marka mig, svona gamla skrukku, og ekki væri óeðlilegt að kúlan mín væri farin að ryðga eitthvað, eins og ég sjálf, því við höfum fylgst að svo lengi. Eftir að hafa fægt kúluna mín og strokið vel þá get ég nú samt ekki séð að henni hafi förlast mikið og ég held bara að hún sé tilbúin að hjálpa mér til við að spá í hvað nýja árið muni færa Eyjamönnum og Eyjunum mínum kæru.

Fólksfækkunin að verða eins og náttúrulögmál
Enn mun fækka í Eyjum á árinu. �?að er bara eins og þetta sé að verða eitthvert náttúrulögmál sem ekkert ræðst við. Eins og óstöðvandi á sem rennur til sjávar. �?g sagði síðast að ný bæjarstjórn myndi setja fram einhverjar tillögur eða aðgerðir til að bregðast við vandanum og enn hef ég þessa tilfinningu. �?g held að umræða um það muni magnast á næstunni og það verði í alvöru farið að ræða um á hvern hátt megi byggja upp einhverja atvinnu í Eyjum sem orðið gæti til þess að stöðva þessa þróun og snúa henni við.

Völvan birtist í heild sinni í Fréttum.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.