Fjarskiptalæknir bráðaþjónustu á sólarhringsvakt vegna illviðris um allt land
þyrla Eir
Verkefni fjarskiptalæknis eru meðal annars að styðja Neyðarlinuna þegar virkja þarf sjúkraþyrlu, forgangsraða sjúkrabílum og sjúkraflutningum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Landspítala að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur yfir landið. Í gildi eru rauðar veðurviðvaranir um allt land. Ljóst er að við slíkar aðstæður geta samgöngur farið úr skorðum sem getur gert sjúkraflutninga torvelda eða ómögulega meðan ástandið varir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Hlutverk fjarskiptalæknis er að veita viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki stuðning í bráðum aðstæðum. Í því felst að sinna bráðri læknisfræðilegri ráðgjöf til viðbragðsaðila og heilbrigðisstarfsmanna. Verkefni fjarskiptalæknis eru meðal annars að styðja Neyðarlinuna þegar virkja þarf sjúkraþyrlu, forgangsraða sjúkrabílum og sjúkraflutningum. Hann styður einnig við vinnu sjúkraflutningamanna og annara viðbragðsaðila, þar með talið björgunnarsveita Landsbjargar við að sinna sjúklingum á vettvangi. Þessu til viðbótar getur fjarskiptalæknir veitt heilbrigðisstarfmönnum stuðning til að takast á við bráð og alvarleg tilfelli sem alla jafna hefðu verið flutt á aðra heilbrigðisstofnum svo sem sjúkrahúsið á Akureyri eða Landspítala.

Vakin er athygli á því að þurfi einstaklingar sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda skulu áfram hringja í síma 112 í neyðartilvikum eða síma 1700 til að fá ráðgjöf um heilbrigðisþjónustu. Viðbragðsaðilar og heilbrigðisstarfsmenn leita til fjarskiptalæknis bráðaþjónustu eftir þörfum.

Fjarskiptalæknir bráðaþjónustu starfar innan Landspítala sem sér um stjórnun og mönnun starfseminnar.

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.