Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Myndasyrpa frá gærdeginum sem Óskar Pétur tók.
Sara Dís Davíðsdóttir við opnun sýningar sinnar í Einarsstofu ásamt Maríu mömmu sinni og Henný systur. Myndir Óskar Pétur.

Goslokahátíð Vestmannaeyja stendur yfir og má segja að alla vikuna sé eitthvað í boði en hápunkti nær hún í dag og á morgun. Hún er að vanda fjölbreytt menningar- og fjölskylduhátíð þar sem saga, listir, tónlist og mannlíf Vestmannaeyja eru í forgrunni. Dagskráin er ein sú stærsta sem boðið hefur verið upp á á undanförnum árum og spannar allt frá listsýningum og tónleikum til íþróttaviðburða, markaða og fjölskylduskemmtunar.

Með fylgja myndir sem Óskar Pétur tók af viðburðum í gær, setningunni við Ráðhúsið, opnun listsýninga um allan , tónleika í Eldheimum svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess eru söfn bæjarins opin alla helgina.

Setning hátíðarinnar fór að þessu sinni fram á fimmtudegi, sem markaði breytingu frá fyrri árum. Frá þeim degi tók við þétt dagskrá með opnun fjölmargra listsýninga, tónleikahaldi og fjölbreyttum viðburðum um allan bæ.

Meðal helstu viðburða hátíðarinnar eru fjölmargar myndlistarsýningar í SagnheimumLandlyst, Stafkirkjunni, Gallerý 24, Einarsstofu og víðar. Fjöldi listamanna með sterk tengsl við Vestmannaeyjar sýnir verk sín ásamt nýjum listamönnum sem taka þátt í hátíðinni í fyrsta sinn.

Tónlist skipar stóran sess á Goslokahátíðinni. Boðið er upp á tónleika í Eldheimum og Alþýðuhúsinu auk skemmtidagskrár á veitingastöðum og samkomustöðum bæjarins sem höfða til breiðs hóps gesta.

Fjölskyldufólk hefur einnig úr miklu að velja. Barnadagskrá, Goslokahlaupið, markaðir, opið hús hjá söfnum og fyrirtækjum, sýningar og afþreying fyrir yngstu gestina eru meðal þess sem boðið er upp á. Jafnframt eru íþróttaviðburðir á borð við golfmót og knattspyrnuleiki hluti af dagskránni.

Goslokanefnd hefur lagt sérstaka áherslu á að skapa sem mestan hátíðarbrag í bænum og hvatt íbúa og fyrirtæki til að skreyta hús og umhverfi í litum Goslokahátíðarinnar. Markmiðið er að gera alla Vestmannaeyjar að hluta af hátíðinni og taka vel á móti þeim fjölmörgu gestum sem leggja leið sína til Eyja þessa helgi.

Goslokahátíðin er haldin árlega til að minnast þess þegar lok tóku eldgosinu í Heimaey árið 1973. Hún hefur á undanförnum árum þróast í eina stærstu menningar- og fjölskylduhátíð landsins þar sem íbúar og gestir njóta saman þess sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.

 

   

 

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Alfreð Týr
Sólarlag hljómar í Eldheimum á Goslokum
Lokasprettur í forsölu Þjóðhátíðarmiða fyrir félagsmenn
Helgarskákmót og afmælisblað í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.