Forsætisráðherra Portúgals dásamaði sjávarafurðir VSV
Antónío Costa, forsætisráðherra Portúgals, fékk að bragða bæði saltaðan þorsk og þorskhrogn frá Vinnslustöðinni á bæjarhátíð þar í landi fyrr í þessum mánuði og dásamaði íslensku sjávarafurðirnar. Hann þeysir nú um sveitir, bæi og borgir vegna sveitarstjórnakosninga 1. október.
�?etta kemur fram á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar, vsv.is. Sölu- og markaðsfyrirtæki VSV, About fish Portugal, hefur bækistöðvar í Oliveira de Azeméis, 20 þúsund manna bæ 35 km suður af Portó. �?ar var hefðbundin bæjarhátíð 9. og 10. september, vettvangur heimafólks til að kynna framleiðsluvörur sínar: landbúnaðarafurðir og aðrar matvörur, hannyrðir, listaverk og handverk af öllu mögulegu tagi.
Nuno Araújo, sölustjóri About fish Portugal, og José Gandra, sölumaður fyrirtækisins, ákváðu að kynna afurðir VSV á bæjarhátíðinni og fundu leið til að gera þær gjaldgengar á kynningu framleiðslu heimamanna. �?eir notuðu til þess sérstakt héraðsbrauð, Pâo de UI, í sneiðum eða bjuggu til brauðkollur til að hafa með saltfiski og hrognum frá Eyjum.
Ekki nóg með það. Til liðs við þá About fish-félaga gekk líka viðskiptavinur þeirra á svæðinu sem kaupir sjávarafurðir frá VSV og gaf gestum að smakka grillaðan, niðursoðinn þorsk með heimabakaða brauðinu.
�??Við nefndum sýningarbásinn okkar Bacalhau de UI og þó ég segi sjálfur frá slógum við í gegn!�?? segir Nuno Araújo glaðbeittur og stoltur.
�??Við sýndum þarna og sönnuðum að þorskinn og hrognin má nota á marga vegu í matargerð. Móttökurnar voru fínar. Allir voru glaðir og ánægðir, ekki síst forsætisráðherrann.�??
Antónío Costa var reyndar ekki þarna á ferð sem forsætisráðherra heldur flokksformaður til að styðja við bakið á frambjóðanda sínum til bæjarstjórnar í Oliveira de Azeméis í kosningunum 1. október.
Costa er annars í hópi mest áberandi og reynsluríkustu stjórnmálamanna Portúgala. Hann er lögfræðingur að mennt og var ráðherra ýmissa málaflokka í ríkisstjórnum á árunum 1997 til 2005. �?á gerðist hann borgarstjóri í Lissabon og gegndi því embætti í 10 ár eða þar til hann myndaði núverandi ríkisstjórn Portúgals í nóvember 2015.
Af vsv.is

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.