Framkoma Gunnars Braga honum til skammar
Viðskiptabann á Rússa kemur illa niður á mörgum og því miður eru sterkar líkur fyrir því að þjóðarbúið allt komi til með að líða fyrir. Verst kemur það niður á sjávarbyggðum, íbúum þar og fyrirtækjum. �?að er ekki þar með sagt að rangt hafi verið að styðja aðgerðir gagnvart Rússum. �?að er hinsvegar þar með sagt að vanda hefði þurfti til verka langt umfram það sem gert var. �?á er einnig sjálfsagt að málflutningur ráðamanna við þessar aðstæður sé yfirvegaður, skír og hófstilltur.
Gunnþór Ingvarsson
Maður er nefndur Gunnþór Ingvarsson, hann er framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar. Undir honum starfa 270 manns, lang flestir á Neskaupsstað. Fyrirtækið sem Gunnþór stjórnar er einn af mikilvægustu stólpum þess byggðarlags. Afleiðingar af aðgerðum stjórnvalda hvað viðskiptabann á Rússa varðar eru nú að hvolfast yfir fyrirtækið sem hann fer fyrir. Mikilvægustu markaðarnir fyrir frystan uppsjávarfisk; loðnu-, síldar- og makrílafurðir auk mikilvægs markaðar fyrir bolfiskafurðir eru nú að lokast. Slíkt kemur til með að bitna hart á flestum þeirra 270 starfsmanna sem starfa hjá Síldarvinnslunni, á fyrirtækinu sjálfu og á samfélaginu á Reiðafirði.
Starfi sínu vaxinn
�?að er eðlilegt að í þeirri stöðu sem Gunnþór er í bregðist hann við á gagnrýnin máta. �?að er eðlilegt að hann hafi áhyggjur af fyrritækinu, starfsmönnum þess og samfélaginu á Reiðafirði. Ef hann hefði það ekki væri hann ekki starfi sínu vaxinn. Eðlileg viðbrögð Gunnþórs voru að tjá sig opinberlega og gagnrýna þann skaða sem búið væri að vinna á hálfraraaldar uppbyggingu á mörkuðum í Rússlandi.
Gunnar Bragi Sveinsson
Maður er nefndur Gunnar Bragi Sveinsson. Hann er utanríkisráðherra. Hann er kjörinn fulltrúi þjóðarinnar og honum er falið mikið vald sem utanríkisráðherra. Gunnar Bragi er sá stjórnmálamaður sem ber besta ábyrgð á því að markaðir fyrir uppsjávarfisk eru nú í uppnámi. Hann ber ábyrgð á því að fyrirtæki eins og Síldarvinnslan koma sennilega til með að lenda í miklum vanda. Hann ber ábyrgð á því að starfsmenn Síldarvinnslunnar tapa tekjum og einhverjir sjálfsagt vinnunni. �?essi ábyrgð gerir ákvörðun um viðskiptabann gagnvart Rússum hvorki rétta né ranga. �?essi ábyrgð gerir það hinsvegar að verkum að ákvörðunin er gagnrýniverð.
Ekki starfi sínu vaxinn
�?að er eðlilegt að stjórnmálamenn þurfi að ræða veigamiklar ákvarðanir sem snerta íbúa landsins. �?að er eðlilegt að þeir þurfi að svara fyrir gjörðir sínar. Ef þeir ráða ekki við að gera slíkt á málefnalegan hátt þá eru þeir ekki starfi sínu vaxnir.


Hótanir
Í stað þess að sýna því skilning að orð og gjörðir í utanríkismálum hafa afleiðingar fyrir íbúa þess lands og fyrirtæki og mæta þannig gagnrýni af stillingu brást Gunnar Bragi hinn versti við. Steininn tók úr þegar utanríkisráðherrann og þingmaðurinn gekk svo langt í viðtalsþættinum �??Á Sprengisandi�?? að viðhafa lítt duldar hótanir um að ef Gunnþór hefði ekki vit á að halda sig til hlés �??halda kjafti- þá yrði fiskveiðistjónunarkerfið endurskoðað. Ef Gunnþór tjáir skoðanir sem ekki eru stjórnmálamanninum þóknanlegar megi allt eins búast við því að eignir hans og tengdra aðila verði gerðar upptækar. �?essar alvarlegu hótanir kryddaði ráðherrann svo með brigslum um arðgreiðslur og oflátungshátt Síldarvinnslunnar. �?g vil trúa því að ráðherran hafi hér hlaupið á sig og þetta tilvik sé ekki dæmigert fyrir hann. Eftir stendur að framkoman að þessu sinni var honum ekki samboðin heldur til skammar.
�?murlegt
�?að er ömurlegt fyrir okkur sem eigum allt undir sjávarútvegi að stjórnmálamenn skuli ítrekað leyfa sér að vega að atvinnugreininni. �?að veikir sjávarútveg og sjávarbyggðir. Orð Gunnars Braga hafa vægi og í karpi um utanríkismál hefur hann ekkert að gera með að viðhafa slíkar hótanir. �?að er fullkomlega skiljanlegt að Gunnþór Ingvarsson bregðist við ákvörðun sem skaðar fyrirtæki hans og hans heimabyggð. Rétt viðbrögð ráðherra hefðu verið að útskýra og réttlæta ákvörðun sína en ekki að viðhafa hótanir og brigslanir. Að nálgast málið málefnalega en ekki að reyna að þagga niður í gagnrýnisröddum. Slíkt er eingöngu merki um vondan málstað.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.