Fyrirmyndarfélög í Vestmannaeyjum
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Um helgina var bæði ÍBV íþróttafélagi og Golfklúbbi Vestmannaeyja veittar viðurkenningar fyrir störf sín sagt er frá þessu í fréttum á vef ÍSÍ.

„Skilar sér í betra og skipulagðara starfi“

ÍBV Íþróttafélag fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á hátíðlegri athöfn föstudaginn 8. apríl þegar nýjir búningsklefar félagsins voru teknir formlega í notkun.  Báðar deildir félagsins, knattspyrnudeild og handknattleiksdeild fengu viðurkenningu auk aðalstjórnar.  Það var Elías Atlasson verkefnastjóri hjá ÍSÍ sem afhenti forystufólki félagsins viðurkenningarnar að viðstöddu fjölmenni.  Á myndinni frá vinstri eru Elías Atlason ÍSÍ, Þór Ísfeld Vilhjálmsson formaður ÍBV Íþróttafélags, Daníel Geir Moritz formaður knattspyrnudeildar og Vilmar Þór Bjarnason framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar.  Myndina tók Sigfús Gunnar Guðmundsson.„Það er okkur hjá ÍBV Íþróttafélagi mikið ánægjuefni að hafa endurnýjað viðurkenninguna sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í annað sinn.  Að vera Fyrirmyndarfélag veitir okkur ákveðið aðhald við að yfirfara skipulag, markmið og verkferla félagsins reglulega og hafa þá aðgengilega í handbók sem nýtist öllum starfsmönnum og sjálfboðaliðum félagsins.  Þetta er mjög mikilvægt og veitir ákveðinn gæðastimpil sem skilar sér í betra og skipulagðara starfi“ sagði Sigríður Inga Kristmannsdóttir íþróttafulltrúi ÍBV af þessu tilefni.

„Hefur gert starfið mun skilvirkara og öflugra“

Golfklúbbur Vestmannaeyja fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ föstudaginn 8. apríl síðastliðinn.  Það var Leifur Jóhannesson stjórnarmaður og formaður unglinga- og afreksnefndar golfklúbbsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Elíasar Atlasonar verkefnastjóra hjá ÍSÍ í fallegu veðri á golfvellinum í Vestmannaeyjum.„Við í Golfklúbbi Vestmannaeyja erum stolt af viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélag.  Að vinna eftir Fyrirmyndarhandbók félagsins hefur gert starfið mun skilvirkara og öflugra“ sagði Karl Haraldsson golfkennari af þessu tilefni.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.