Herjólfur hefur rétt í þessu
Staðfest brottför frá Vestmannaeyjum kl. 10:00 ( 09:30 ferð)
Staðfest brottför frá Landeyjahöfn kl. 11:00 (10:45 ferð)
Aðstæður breyttust fljótt og biðjum við afsökunar á stuttum fyrirvara. Um er að ræða ferðir sem voru áætlaðar frá Vestmannaeyjum kl. 09:30 og frá Landeyjahöfn kl.10:45.
Einungis 14 mínútum áður hafði félagið send frá sér tilkynningu þar sem sagt er frá því að “Viðgerðir standa enn yfir á rafmagnsbilun í annarri skrúfunni Herjólfi og því falla niður ferðir kl. 09:30 frá Vestmannaeyjum og kl. 10.45 frá Landeyjahöfn. Næsta tilkynning verður gefin út kl.15:00 í dag hvað varðar siglingar seinnipartinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi.”
Í næst síðustu freð skipsins í gærkvöld kom upp rafmagsbilun í annarri skrúfu Herjólfs viðgerð hefur staðið yfir síðan í gær.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.