Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
Það var tilhlökkun hjá ferðaþjónustuaðilum í Eyjum að taka á móti fyrsta skemmtiferðaskipi sumarsins. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Skemmtiferðaskipasumarið í Vestmannaeyjum hófst formlega í dag þegar fyrsta skemmtiferðaskip ársins lagði leið sína til Eyja. Þar með er ákveðinn sumarkafli hafinn í bænum, en næstu mánuðir munu þúsundir gesta streyma til Eyja með skipum hvaðanæva að úr heiminum.

Von er á um 100 skemmtiferðaskipum til Vestmannaeyja í sumar og talið er að farþegar verði rúmlega 50 þúsund talsins. Skemmtiferðaskipakomur hafa á undanförnum árum orðið sífellt stærri þáttur í ferðaþjónustu og atvinnulífi Eyjanna, þar sem áhrifanna gætir víða í bæjarlífinu.

Fyrsta skipakoma ársins markar fyrir marga ákveðin tímamót – þegar sumarið fer að láta á sér kræla af alvöru. Líf færist í höfnina, gestir fylla götur bæjarins og sumarstemmingin tekur að myndast.

Halldór B. Halldórsson tók meðfylgjandi myndband í dag þegar fyrsta skip sumarsins kom til Eyja og fangaði þar vel andrúmsloftið við höfnina á þessum fyrsta stóra degi sumarsins.

Play Video

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.