Gaman söngleikur með fallegan boðskap
14. mars, 2024

Við höldum áfram að kynna og taka púlsinn á þeim sem taka þátt í leiksýningunni Spamalot. Að þessu sinni eru það þær Valgerður Elín og Svala sem svara nokkrum vel völdum spurningum.

Valgerður Elín Sigmarsdóttir dansari og búningahöfundur 

Aldur? 20 ára.
Hlutverk þitt í Spamalot? Ég er hluti af dönsurum sem kallast karamellusystur og hanna og sauma búninga.
Hefur þú áður tekið þátt í leikhúsverki? Ég hef verið í leikhúsinu síðan í Klaufum og kóngsdætrum árið 2017 og hef tekið þátt í öllu sem ég mátti vera með í síðan þá, á sviði eða á bakvið tjöldin, til dæmis í Ávaxtakörfuni sem Gedda, Rocky Horror sem Janet og Gosa sem álfadís. Það eru þá 9 verk í heildina, ef við teljum með uppsettninguna á Spamalot sem fór aldrei á svið vegna covid, og þá er þetta mitt 10. verk. 
Hvernig gengur að læra dansana? Ég hef aldrei lært svona flókna og marga dansa áður, þetta er bara ótrúlega skemmtilegt að hafa fyrir því að læra og framkvæma dansana því að þetta er þrek bæði fyrir líkamann og hugann. Við dansararnir æfum á sér æfingum með frábærum danshönnuðum, síðan æfi ég mig heima þegar mér gefst tækifæri til og svo í lokin æfum við með öllum leikhópnum.
Hefur þú lært dans eða er þetta áhugamál? Það nálægasta sem ég get kallað það að hafa lært dans er bara að hafa verið í dans tímum í grunnskóla hjá Súsönnu. En síðastliðin ár hefur áhugi minn á dansi vaxið í gegnum leikfélagið og finnst mér mjög skemmtilegt bæði að dansa og horfa á dans.
Ertu að læra eitthvað sem þú hefur ekki gert áður? Eins og ég nefndi fyrir ofan þá hef ég aldrei lært svona flókin eða hröð spor áður sem taka jafn mikið á. Svo er ég að læra í fyrsta sinn að sveifla “flail” og að notast við lyftur í dansi.
Hvað er skemmtilegast við þetta verkefni? Það skemmtilegasta hlýtur að vera félagskapurinn, hreyfingin, áreynslan og það að hafa fyrir slíku verkefni til þess að fá svo að uppskera það á sýningum.
Hvernig mydir þú lýsa Spamalot? Spamalot er mjög fyndið í gegn með nóg af lögum og dansatriðum inn á milli og ef það var ekki nóg þá ber það líka fallegan boðskap.
Eitthvað að lokum? Allir að skella sér í leikhús á þetta frábæra verk! Frumsýnum um páskana! 

Svala Hauksdóttir dansari 

Aldur? Ég er tvítug .
Hlutverk þitt í Spamalot? Ég er Karamellusystir sem er mjög fjölbreytt hlutverk. Við erum að dansa í nánast öllum danssenum og einnig fáum við að vera Ní riddarar ásamt öðrum hlutverkum. 
Hefur þú áður tekið þátt í leikhúsverki? Já, hef tekið þátt í verkum síðan 2016 hér í leikfélaginu. Það sem stendur upp úr er Rocky Horror þegar ég var dansari, það var eitt af skemmtilegustu verkunum. Tímabilið einkenndist af mjög góðum leikhóp og það var alltaf gaman á æfingum, einnig rættist stór draumur að fá að sýna á sviðinu í Þjóðleikhúsinu.
Hvernig gengur að læra dansana? Mér finnst ganga bara sjúklega vel að læra dansana, það eru sum flókin spor á köflum og erum við duglegar að mæta fyrir æfingar að hita upp með dönsunum. Einnig renni ég yfir sporin heima af og til. 
Hefur þú lært dans eða er þetta áhugamál? Ég hef bara lært dans í grunnskóla og á námskeiðum. En þetta er mjög skemmtilegt áhugamál sem þróaðist út frá því að vera í leikfélaginu. Mér finnst mjög gaman að dansa.
Ertu að læra eitthvað sem þú hefur ekki gert áður? Þetta er ekkert svo nýtt fyrir mér, ég var með þetta sama hlutverk þegar við ætluðum að sýna Spamalot fyrir Covid. Höfum bara aðeins verið að læra ný spor, það er alltaf gaman að læra ný spor.  
Hvað er skemmtilegast við þetta verkefni? Það er félagsskapurinn í danshópnum og að fá að vera mjög mikið á sviðinu að dansa, ég nýt mín svo mikið að vera á sviði og dansa. 
Hvernig mydir þú lýsa Spamalot? Ég myndi lýsa Spamalot sem grín eða gaman söngleik.
Eitthvað að lokum? Já, ég hvet bara alla að mæta og sjá þetta stórkostlega verk sem við erum búin að vera vinna hörðum höndum að.  

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst