Garðfuglakönnunin 2021-22 hefst í dag
????????????????????????????????????

Hin árlega garðfuglakönnunn fuglaverndar hefst í dag sunnudag 24. október, fyrsta sunnudag eftir upphaf vetrar.Tilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt.

Þátttakendur  geta allir verið, jafnt fullorðnir og börn, sem hafa áhuga á fuglum og fylgjast með fuglum.  Þeir sem fóðra fugla í garðinum sínum eru í góðri aðstöðu og hvattir til að taka þátt.

Lesa meira um fóðrun garðfugla, fuglagarðinn og garðfuglategundir.

Garðfuglakönnun – eyðublöð
Þrenns konar útgáfur verða af eyðublöðunum, svo þú velur hvað þér hentar best hvort sem það er að skrá í tölvu eða prenta út og skrá í höndunum.

Garðfuglakönnun skráning  2021-2022 .pdf

Garðfuglakönnun skráning  og leiðbeiningar 2020-2021

Garðfuglakönnun vikutalningarblað.pdf

Garðfuglakönnun lýkur síðan laugardaginn 23. apríl 2022.

Niðurstöður athugunar
Að loknum athugunartíma má senda niðurstöðu á netfangið gardfugl@gmail.com eða í pósti merkt: Fuglavernd, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Nýjustu fréttir

Sigurður Guðmundsson á Hljómey í ár
Jákvæðar umræður um Eyjagöng á Hvolsvelli
Eyjakona og drottning íslenskrar knattspyrnu
Bæjarstjórnarfundur í beinni
Andri Erlingsson til Kristianstad
Verulegur munur á tilboðum í flóðlýsingu Hásteinsvallar
Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.