Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja þann 4. ágúst en þá hætti Flugfélag Íslands að fljúga til Eyja. Hannes Sigurðsson, umboðsmaður Ernis í Vestmannaeyjum, segir að nýja félaginu hafi verið vel tekið og nóg að flytja.