Gerum betur
Ari Trausti Guðmundsson þingmaður Suðurkjördæmis og Gunnar Marel Eggertsson skipasmiður verða í heimsókn hér í Eyjum fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. okt. �?eir eru báðir í framboði fyrir Vinstrihreyfinguna- grænt framboð í Suðurkjördæmi, Ari í fyrsta sæti en Gunnar í því sjötta.
Á fimmtudag munu þeir félagar hitta kjósendur og ræða við þá víðs vegar um bæinn en efna síðan til spjallfundar í Arnardrangi um kvöldið kl. 20 þar sem allir eru velkomnir í spjall um landsmálin og málefni þau sem helst hvíla á Vestmannaeyingum um þessar mundir.
Stefnu og frambjóðendum Vinstri grænna hefur verið vel tekið að undanförnu og ljóst er að stefna hreyfingarinnar á góðan hljómgrunn meðal þjóðarinnar þar sem sanngjörn krafa um traust, stöðugleika, heiðarleika, gagnsæi og jöfnuð gerist æ háværari og það ekki að ástæðulausu.
Vinstri græn eru eru reiðubúin til að leiða ríkisstjórn með megináherslu á þau mál sem hér að framan eru nefnd undir slagorðinu �??Gerum betur�??. Til þess að svo geti orðið er afar mikilvægt að sem víðtækast umboð fáist frá kjósendum um land allt í kosningunum 28. okt., ekki síst í Suðurkjördæmi.
VG í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.