Gerum lífið einfaldara - nýtum kosningaréttinn

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum í gegnum söguna og á sterkt erindi við framtíðina. Sjálfstæðisflokkurinn vill einfalda fólki lífið, draga úr ríkisafskiptum og tryggja að hið opinbera sé hvataaðili en ekki þröskuldur fyrir frjóar hugmyndir einstaklinga og atvinnulífs.

Frelsi til búsetu
Grunnstef Sjálfstæðisflokksins er frelsið og það í víðu samhengi, hvort sem það er frelsi til orðs eða athafna en í því felst einnig valfrelsi til búsetu. Til þess að fólk hafi raunverulegt val um búsetu þarf að tryggja búsetuskilyrði á landsbyggðinni með öflugum innviðum og grunnþjónustu á borð við öruggt aðgengi að raforku, vatni, góðum og öruggum samgöngum, öflugum fjarskiptum og heilbrigðisþjónustu.

Heimsfaraldur Covid hefur gefið landsbyggðinni sóknartækifæri með aukinni fjarþjónustu og fjarvinnslu. Slíkt viljum við nýta til að stórefla fjarheilbrigðisþjónustu, auka fjölbreytileika og úrval fjarnáms á háskólastigi og styðja við möguleika til fjarvinnu bæði í einkarekstri og hjá hinu opinbera. Þannig aukum við samkeppnishæfi landsbyggðarinnar um vinnuafl og ungt fólk sem oft leggur land undir fót á háskólaárunum og kemur sjaldnast aftur heim.

Einföldum lífið og lækkum skatta
Með Stafrænu Íslandi hefur orðið rafræn bylting á þjónustu hins opinbera. Þannig hefur dregið úr óþarfa heimsóknum á opinberar skrifstofur, skriffinnska og flækjustig minnkað enda er tími okkar allra verðmætur og bera þarf virðingu fyrir honum. Sjálfstæðisflokkurinn vill halda áfram þessu þarfa verkefni, einfalda regluverkin, koma með þjónustuna heim til þín, minnka báknið og draga úr þörf á opinberum stofnunum og dýru starfsmannahaldi og geta m.a. þannig lækkað skatta og aukið ráðstöfunartekjur þínar.

Mikilvæg mál fyrir Vestmannaeyjar
Fyrir Vestmannaeyjar eru framundan fjölmörg stór verkefni sem skipta miklu máli. Þeim þarf að koma í framkvæmd og taka á af festu, þ.á.m. er ný vatnslögn og rafstrengur til Vestmannaeyja, bættari samgöngur í lofti og legi, klára rannsóknir á jarðlögum vegna jarðganga og koma á tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu á Suðurland til að auka bráðaviðbragð við lífshættulegum veikindum. Ekki er síður mikilvægt að tryggja stöðugleika í fiskveiðistjórnunarkerfinu til að vernda þau störf sem þar hafa skapast, en sanngjarnt væri að sveitarfélög fengju eðlilega hlutdeild í veiðigjöldum, sem þaðan eru greidd, til uppbyggingar samfélaganna þar sem verðmætin eru sköpuð. Þessum málum og fleirum tengdum Vestmannaeyjum mun ég beita mér fyrir á komandi kjörtímabili

Ef þú vilt aukið frelsi, minni ríkisafskipti, sterkari landsbyggð, lægri skatta og eflingu atvinnulífs og nýsköpunar þá skaltu setja X við D.  

Jarl Sigurgeirsson

  1. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.