Gísli Stefánsson stefnir á 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Gísli Stefánsson stefnir á 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Gísli greindi frá þessu á facebook síðu sinni í morgunn.
“Síðustu 4 ár hafa verið mér lærdómsrík þegar kemur að þátttöku í pólitík. Ég hef setið sem nefndarmaður í fjölskyldu- og tómstundaráði ásamt því að vera formaður Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja undanfarin tvö ár.
Ég hef fundið meðbyr með skrifum mínum um pólitísk málefni og finn að hugmyndir mínar eiga fullt erindi inn í umræðuna. Ég hef líka verið hvattur til áframhaldandi þátttöku í pólitísku starfi og hef því ákveðið að bjóða mig fram í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi prófkjöri.
Um leið og ég tilkynni þetta vonast ég til að fleiri gefi kost á sér svo halda megi veglegt prófkjör. Að mínu mati eru fár leiðir áhrífaríkari til að hafa áhrif á samfélagið sitt en að taka þátt í pólitík. Þrefið sem því oft fylgir er ekki alltaf eftirsóknarvert en þegar markmið nást og vel gengur er það gríðarlega gefandi.”

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.