Glíman hafin en henni er ekki lokið
Dagurinn 30. nóvember var stór dagur og mun eiga sinn sess í sögubókum framtíðarinnar. �?ann dag kynnti ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tillögur um skuldaleiðréttingu á verðtryggðum stökkbreyttum húsnæðislánum.
Eignalausa kynslóðin
Alveg síðan að Hrunið varð haustið 2008 hafa heimili landsins beðið eftir aðgerðum. Núverandi ríkisstjórn lofaði aðgerðum því það er mun dýrara fyrir samfélagið að skilja heimilin eftir í skuldum og heila kynslóð eftir eignalausa, en að leysa vandann. Sérfræðingahópurinn að baki skuldaleiðréttingunni hefur nú skilað afar vandaðri skýrslu og á heimasíðu Forsætisráðuneytisins má finna skýrsluna, Spurt og svarað, glærukynninguna og fleira sem að gagni kemur til að átta sig á í hverju aðgerðirnar felast: http://www.forsaetisraduneyti.is/
Leiðréttingin
Leiðréttingin er almenn aðgerð sem felst í að verðtryggð húsnæðislán verða færð niður um fjárhæð sem svarar verðbótum umfram 4,8% sem féllu til á tímabilinu desember 2007-ágúst 2010. Tekið verður tillit til fyrri úrræða, m.a. 110% leiðarinnar. Hámarksfjárhæð niðurfærslu er 4 milljónir á heimili og leiðréttingin verður gerð á fjórum árum. �?essi leið mun ekki hafa þensluhvetjandi áhrif á samfélagið að mati sérfræðinga. Gert er ráð fyrir að leiðréttingin fari fram um mitt árið 2014 og úrræði séreignarsparnaðar hefjist sama ár. �?eir sem nýta sér bæði úrræðin geta fengið um 20% höfuðstólslækkun fyrir lok árs 2017 að gefnum forsendum um verðbólgu, lánsfjárhæð og launaþróun.
Nær til flestra heimila
Skattfrjálsan séreignasparnað geta allir nýtt sér, ekki bara skuldarar heldur líka ungt fólk sem býr í foreldrahúsum og leigjendur. Með því að bjóða upp á þennan möguleika þá nær aðgerðin til 100 þúsund heimila í landinu af 125 þúsund, en aðeins 21 þúsund heimila eru skuldlaus. Aðrir skulda eða leigja.
Gagnrýnt hefur verið að hátekjufólk muni græða mest á séreignarsparnaðarleiðinni en það er ekki rétt, þar sem þakið er 500 þús. kr. á heimili á ári, sem miðast þá við að samanlögð mánaðarlaun heimilis séu um 700 þús. kr. Sú staðreynd að þak sé á leiðréttingunni upp á 4 millj. króna tryggir líka að fyrst og fremst sé verið að koma til móts við millistéttina og bæta kjör sem flestra heimila en flestir skulda minna en 25 milljónir króna.
�?örf á frekari aðgerðum til að leysa vandann
Heimilin eru grunneining samfélagsins. Ef þau virka ekki þá er kyrrstaða. Aðgerðaráætlun í tíu liðum um lausn á skuldavanda heimilanna var samþykkt á Alþingi í sumar: http://www.althingi.is/altext/142/s/0009.html
Skuldaleiðréttingin var aðeins einn liður í þeirri áætlun. �?að er ljóst að verkefnin framundan eru fjölmörg. Skuldaleiðréttingin ein og sér leysir ekki vanda allra, en hún er skref í rétta átt. Framundan eru bjartari tímar og nýtt framfaraskeið íslenskrar þjóðar.

Nýjustu fréttir

Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.