Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Herrakvöld ÍBV 2026
Borðin svignuðu undan kræsingunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Herrakvöld fótboltans fór fram í Golfskálanum í gærkvöldi við afar góða stemningu. Kvöldið er orðið fastur liður í félagslífi knattspyrnuáhugamanna í Eyjum og var þátttaka góð að vanda.

Óskar P. Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta var á staðnum og fangaði stemninguna í fjölda mynda sem fylgja fréttinni.

Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg þar sem veislustjórinn Bjarni Ólafur Guðmundsson hélt utan um kvöldið af sinni alkunnu snilld. Meðal ræðumanna voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðlaugur Þór Þórðarson sem ávörpuðu gesti.

Brynjar Níelsson komst ekki sjálfur til Eyja að þessu sinni en sendi í staðinn son sinn, Helgi Brynjarsson, sem sá um að halda uppi léttu og skemmtilegu andrúmslofti með uppistandi.

Gestum bauðst glæsilegt sjávarréttahlaðborð frá Einsa Kalda og Rikka kokki sem vakti mikla lukku. Þegar leið á kvöldið tók trúbadorinn Aron Dagur við og hélt uppi fjörinu fram á nótt.

Herrakvöldið hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur jafnan selst upp, og var engin undantekning á því að þessu sinni. Ljóst er að kvöld sem þetta skipa mikilvægan sess í menningar- og skemmtanalífi Vestmannaeyja. Sjá myndasyrpu frá kvöldinu hér fyrir neðan.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.