Golfvöllurinn í Eyjum á meðal þeirra bestu í heimi
Mynd/Golfklúbbur Vestmannaeyja

Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum hefur komist á lista hins virta breska golftímarits Today’s Golfer yfir 100 ógleymanlegustu golfupplifanir heims. Völlurinn er í 23. sæti listans en Golfklúbbur Brautarholts er í 16. sæti.

Listi Today’s Golfer byggir á mati sérstakra álitsgjafa sem ferðast um heiminn í leit að völlum með svokallaðan „X-faktor“ – völlum sem veita kylfingum ógleymanlega heildarupplifun.

Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er þekktur fyrir einstakt umhverfi þar sem kylfingar leika innan um stórbrotið landslag, með sjávarútsýni og oft við krefjandi íslenskar vindaaðstæður. Náttúran er stór hluti upplifunarinnar og gerir hvern hring ólíkan því sem kylfingar eiga að venjast annars staðar.

Um völl Golfklúbbs Vestmannaeyja hafði dómnefndin þetta að segja:

„Ekkert annað landslag á listanum stenst samanburð, þar sem völlurinn liggur í gíg við sjávarbakkann og myndar risastórt hringleikahús frá náttúrunnar hendi.“

Árangurinn er mikið fagnaðarefni fyrir Golfklúbb Vestmannaeyja og íslenskt golf almennt. Að komast inn á lista alþjóðlegs golftímarits yfir 100 ógleymanlegustu golfupplifanir heims er mikil viðurkenning á sérstöðu og glæsilegu umhverfi vallarins.

Hægt er að sjá listann hér.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.