Hætta við kvöldskemtun á Stakkagerðistúni vegna smithættu

Fyrirkomulag bæjarhátíða og viðburða í Eyjum var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Í sumar er búið að halda flesta þá viðburði sem haldnir hafa verið undanfarin ár. Sjómannadagsráð hélt sjómanndagshelgina hátíðlega, en með breyttu sniði þó. Haldin var hátíð vegna Þjóðhátíðardagsins, 17. júní og einnig hefur ÍBV Íþróttafélag haldið bæði TM mótið (pæjumót) og Orkumótið nú í júnímánuði. Mótin gengu mjög vel. Voru þessir viðburðir aðlagaðir að þeim reglum og takmörkunum sem voru í gildi vegna Covid-19. Goslokahátíð verður haldin næstu helgi og verður fjölbreytt dagskrá með áherslu á barnadagskrá, listir og menningu. Öllum samkomutakörkunum og reglum sem eru í gildi verður fylgt. Til þess að gæta að öryggi og fylgja tilmælum Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og embættis sóttvarnalæknis hefur Goslokanefnd ákeðið að hætta við kvöldskemtun sem vera átti á Stakkagerðistúni. Ljóst er að sá viðburður hefði getað orðið mjög fjölmennur og þar með aukið smithættu.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.