Hafsteinn Briem hefur yfirgefið ÍBV
Varnarmaðurinn Hafsteinn Briem hefur yfirgefið ÍBV en þetta staðfesti hann á Instagram í dag. Fotbolti.net greindi frá.
�??Mig langar að þakka Eyjamönnum fyrir minn tíma þar. Mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri á að spila fyrir jafn einstakt félag og ÍBV er. Framtíðin er björt í Eyjum,” segir Hafsteinn.
�?essi 26 ára miðvörður hefur verið lykilmaður hjá ÍBV síðan hann gekk í raðir félagsins frá Fram fyrir tímabilið 2015.
Eyjamenn náðu á liðnu tímabili að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni og urðu auk þess bikarmeistarar eftir sigur á FH í úrslitaleik.
Ekki er vitað hvert Hafsteinn fer en hann var orðaður við Breiðablik í slúðurpakka Fótbolta.net í síðasta mánuði og þá hefur Stjarnan einnig verið nefnd.
Möguleiki er á því að fleiri leikmenn yfirgefi ÍBV en Pablo Punyed og Sindri Snær Magnússon eru báðir að renna út á samning og sögusagnir um að þeir séu á leið á fasta landið.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.