Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður

 Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar.

Harpa hefur starfað við íslensk og erlend söfn í rúm 20 ár og sem safnstjóri Listasafns Íslands stjórnað einu af þremur höfuðsöfnum íslenska ríkisins. Þar hefur hún á undanförnum árum leitt starfsemina inn í nýja tíma með áherslu á að miðla listaverkasafninu með stafrænum hætti. Skerpt hefur verið á menntunarhlutverki safnsins og yngstu gestirnir settir í forgang. Undir stjórn Hörpu eru metnaðarfull verkefni hafin sem munu stuðla að aukinni þekkingu á myndlist og íslenskri sögu og á sama tíma hefur Listasafn Íslands vaxið og starfsemi þess verið til fyrirmyndar.

Harpa er fædd árið 1972. Að loknu stúdentsprófi nam hún við fornleifafræði- og listasögudeild Sorbonne háskóla í París þar sem hún lagði stund á listasögu frá tímum frumkristni og lauk Maîtrise gráðu árið 1998. Árið 2016 lauk hún námi í breytingastjórnun fyrir safnstjórnendur við Getty Leadership Institute í Claremont Graduate University í Kaliforníu.

Að loknu námi í París starfaði Harpa við safna- og fornleifafræðideild Boulogne-sur-Mer borgar í Frakklandi. Þar vann hún m.a. að fornleifakönnunum og skráningum. Hún var ráðin verkefnisstjóri menningarsamskipta við Ísland í Charente-Maritime héraði til ársins 2002 þegar hún var ráðin deildarstjóri sýningadeildar Listasafns Íslands. Árið 2008 var Harpa ráðin forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ þar sem hún vann að flutningi safnsins og opnun á Garðatorgi ásamt uppbyggingu safnastarfsemi þess, þar til hún var skipuð safnstjóri Listasafns Íslands 2017.

Harpa hefur gegnt trúnaðar- og félagsstörfum; setið í stjórn Félags forstöðumanna ríkisstofnana og situr nú í stjórn Norræna Vatnslitasafnsins í Svíþjóð og í fulltrúaráði Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.

Með tilliti til farsællar stjórnunarreynslu, víðtækra starfa innan safnageirans og góðrar þekkingar á málefnum Þjóðminjasafnsins, hefur menningar- og viðskiptaráðherra ákveðið að nýta heimild í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að flytja embættismann milli stofnana og skipa Hörpu þjóðminjavörð Þjóðminjasafns Íslands. Mun reynsla hennar nýtast til að taka við Þjóðminjasafni Íslands, höfuðsafni íslenska ríkisins á sviði menningarminja.

 

 

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.