Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“
Lil Curly og Háski mæta í dalinn í ár.

Nýtt þjóðhátíðarlag Háska, Lil Curly og Curly FM, ,,Væntanlega“, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum upp á síðkastið, en lagið hefur farið eins og eldur í sinu á miðlinum TikTok þar sem notendur hafa birt myndbönd við grípandi lagið.

Háski og félgar bætist því í hóp þeirra tónlistarmanna sem hafa samið og gefið út þjóðhátíðarlög að eigin frumkvæði. Á meðal þekktra laga sem samin hafa verið um Þjóðhátíð má nefna lög eftir FM95BLÖ, PATR!K, Friðrik Dór & Jón Jónsson ásamt Klöru Elíasar.

Háski er söngvari, lagahöfundur og pródúsent sem hefur fest sig í sessi á íslenskri tónlistarsenu.
Hann vakti fyrst athygli með lagasmíðum þar sem hann nýtti hljóðbrot og eftirminnileg augnablik úr íslensku menningarlífi og fléttaði þeim saman við dansvæna tónlist. Meðal fyrstu laga hans voru Djamma um helgar og Hátt enni, sem vöktu töluverða athygli.
Síðar færði hann sig yfir í frumsamið efni og hefur síðan sent frá sér vinsæl lög á borð við: Hvert ertu að fara?, Drive, FRELSI og Besta party ever. Tónlist hans einkennist af blöndu af poppi, raftónlist og dansvænum takti.

Háski kemur fram á stóra sviðinu eftir miðnætti á föstudagskvöld og spilar einnig á Húkkaraballinu. Þjóðhátíðargestir fá því væntanlega tækifæri til að syngja með þegar ,,Væntanlega“ ómar um Herjólfsdal um helgina.

Hér má heyra nýjasta Þjóðhátíðarlag Háska 

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.