Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Frá Vestmannaeyjar Open 2026.

Hauststarf Pílufélags Vestmannaeyja er að hefjast og nú gefst fólki á öllum aldri tækifæri til að dusta rykið af pílunum og snókerkjuðanum. Framundan er fjölbreytt starf fyrir bæði börn og fullorðna, þar á meðal deildarkeppni í pílu, æfingar fyrir 18 ára og yngri og áframhaldandi aðgangur að glæsilegri aðstöðu félagsins.

Vöruhúsdeildin 2026

Skráning er hafin í Vöruhúsdeildina 2026, hina vinsælu deildarkeppni Pílufélags Vestmannaeyja. Í fyrsta sinn verður deildin haldin að hausti en fyrsta umferð fer fram 28. september.

Keppendum verður skipt í deildir eftir styrkleika þannig að allir fái jafna og skemmtilega leiki, óháð reynslu og getu. Úrslitakeppnin verður síðan haldin með glæsibrag í Höllinni 21. nóvember.

Skráning í deildina stendur yfir til 25. september.

U18-æfingar hefjast í september

Pílufélagið býður einnig upp á æfingar fyrir börn og ungmenni. U18-æfingar verða á laugardögum frá klukkan 16 til 17 í húsnæði félagsins. Fyrsta æfingin verður laugardaginn 12. september og er æfingagjald fyrir tímabilið 2026–2027 15.000 krónur.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.