Heiðra minningu fallinna félaga á hausttónleikum

Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur sína árlegu hausttónleika nk. laugardag kl.16. í Hvítasunnukirkjunni.

Mikið er venjulega lagt upp úr þessum tónleikum og eru þeir jafnan hápunkturinn á starfi sveitarinnar og efnisval fjölbreytt.

Að þessu sinni ætlar Lúðrasveit Vestmannaeyja að heiðra minningu þeirra Stefáns Sigurjónssonar og Ellerts Karlssonar á tónleikunum en þeir eru báðir fyrrum stjórnendur Lúðrasveitarinnar og létust á árinu.

Stefán var stjórnandi um 19 ára skeið og var límið í starfinu allan þann tíma sem hann starfaði. Stefán átti sér nokkur uppáhaldslög sem flutt verða á tónleikunum og er óhætt að segja að það lagaval sé bæði skemmtilegt og frumlegt.

Ellert Karlsson byrjaði ungur í sveitinni og stjórnaði henni um tíma en að auki var Ellert einn helsti útsetjari lúðrasveitartónlistar á Íslandi og hafði einstakt lag á að útsetja lög lærimeistara síns, Oddgeirs Kristjánssonar. Verða flutt lög í útsetningu Ellerts.

Tónleikarnir eru svokallaðir styrktarfélagatónleikar þar sem styrktarmeðlimum er boðið á tónleikana en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn en styrktarfélagar hafa fengið greiðslubeiðni í heimabanka.
Tónleikarnir verði laugardaginn 12.nóv nk. Kl.16.00 í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut.

Með kærri kveðju
Lúðrasveit Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.