Heimaklettur er mjög vinsæll ferðamannastaður enda tignarlegur og fallegur. Klettinn heimsækir fjöldi fólks ár hvert, nýtur göngunnar og útsýnisins. Sumir fara þangað oftar en aðrir, jafnvel daglega. Einn af aðdáendum Klettsins er Halldór Benedikt og hann fór einmitt í slíka ferð í síðustu viku og hafði myndavélina með í för.
Á heimaslod.is segir: �??Heimaklettur sem er á Heimaey er hæsta fjall Vestmannaeyja. hann er 283 m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er móbergsstapi sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem fé er haft á beit.
Fjallgöngur hafa löngum verið stundaðar í Heimakletti. Oft hefur uppgangan verið erfið og hættuleg vegna brattra hlíða og bergs. En bót varð á því í kringum árið 2000. �?á var smíðaður stigi og settur upp þar sem erfiðasti hjallinn er. Ekki er þó þrautalaust að komast á topp Heimakletts og þarf óvant fólk helst að vera í fylgd með einhverjum sem þekkir aðstæður. Gangan upp á klettinn er mikið gaman og reynir vel á. �?tsýnið er fagurt og frábært að sjá bæinn og eyjarnar frá þessum sjónarhóli. Á björtum degi sést vel upp á meginlandið, Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull blasa við og langt sést upp á Suðurlandsundirlendið.
�?egar sjávarfjöll leyfa er hægt að fara bæði framan (sunnan við) og bakvið (norðan við) Heimaklett. Aðstæður þurfa að vera góðar til að fara á bakvið Klettinn en þá er upplifunin ennþá meiri. Fegurðin og háir klettarnir heilla hvern þann sem sér.
Systraklettar Heimakletts heita Miðklettur og Ystiklettur. Ekki er fólki ráðlegt að fara úr Heimakletti út í næstu kletta en það er þó hægt fyrir heimavana menn. Miðklettur og Ystiklettur eru heldur minni en Heimaklettur en saman mynda þeir órjúfanlega mynd sem hefur fest sig í hugum margra Eyjamanna og utanaðkomandi fólks. Í Ystakletti er stunduð lundaveiði á sumrin og er veiðikofi á honum. Lundaveiði er einnig stunduð í Heimakletti, sérstaklega á einum stað, við Steininn á Neðri-Kleifum.�??
Og svona orti Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir um Heimaklett:
Heimaklettur úr hafi rís,
dýrð sé þér, lof og prís.
Gyllir feld þinn sólarglóð,
skrýðist fegurst blómaslóð.
Stendur vörð þinn, nótt og dag,
syngja fuglar fagurt lag,
þeir eiga lífið, að launa þér,
sem að berð þá í faðmi þér.
�?ú vörður Eyjanna tiginn ert,
þó að aldri , þú gamall sért
mun ég ætíð minnast þín
þegar lokast augu mín.