Heimi var ráðlagt að hætta eftir EM
Eins og þjóðin veit komst Íslenska karlalandsliðið inná HM í gær með sigri gegn Kosóvó í lokaum­ferð riðlakeppni HM tryggðu Íslend­ing­ar sér sæti í loka­keppni HM í fyrsta sinn í sög­unni en heims­meist­ara­mótið fer fram í Rússlandi næsta sum­ar.
Heim­ir Hall­gríms­son, landsliðsþjálf­ari, sagði á blaðamanna­fundi eftir leik í gær að honum hefðii verið ráðlagt í nokkr­um sam­töl­um að hætta sem landsliðsþjálf­ari eft­ir EM í Frakklandi. Árang­ur­inn yrði ekki betri en sá sem þar náðist þegar Ísland komst á stór­mót karla í fyrsta skipti og fór í 8-liða úr­slit. Mbl.is greindi frá,
�??Liðið hef­ur verið að bæta sig og átti inni að mér fannst í fyrra. Sum­ir sögðu mér að hætta eft­ir EM í Frakklandi og njóta augna­bliks­ins. Hætta þegar góður ár­ang­ur hafði náðst. En ég trúði því að við gæt­um gert bet­ur. Við höf­um bætt allt hjá sam­band­inu. �?að var mikið rúm fyr­ir bæt­ingu og það var ástæðan fyr­ir því að við trúðum þessu,�?? sagði Heim­ir í upp­hafi fund­ar­ins.
Heim­ir sagði mik­il­vægt fyr­ir ís­lenska liðið að halda í sín sér­kenni. Okk­ar lið geti aldrei hermt eft­ir Spán­verj­um á fót­bolta­vell­in­um. Okk­ar lið yrði þá bara verri út­gáfa af spænska landsliðinu.
Heim­ir sagði að lengi hafi verið vitað að þessi helgi yrði mik­il­væg og hann bjóst við því að úr­slit­in í riðlin­um myndu ráðast í lokaum­ferðinni.
�??Við viss­um alltaf að þessi leik­ur yrði úr­slita­leik­ur fyr­ir okk­ur. Við und­ir­bjugg­um þessa helgi vel. Ferðin til Tyrk­lands er lík­lega ein sú dýr­asta í sögu KSÍ. �?að var dýrt en ég held að það hafi borgað sig. Við þurft­um að glíma við ýms­ar hindr­an­ir, til dæm­is þegar far­ang­ur okk­ar skilaði sér ekki fyrr en dag­inn fyr­ir leik. �?g segi að ekk­ert lið í heim­in­um hefði getað tek­ist eins vel á við slíka hindr­un eins og við gerðum en þess má geta að starfs­fólkið okk­ar svaf ekki í ferðinni.�??
Heim­ir tók fram að um væri að ræða mikla sam­vinnu hjá öllu þjálf­arat­eym­inu.
�??�?etta er svo mik­il hóp­vinna. �?að er eng­inn einn sem á orðið held­ur er þetta mik­il sam­vinna. �?annig held ég að við get­um unnið stór­ar þjóðir. Með því að vinna hlut­ina sam­an. �?ar má nefna fjöl­miðla. �?g ef­ast um að nokk­ur landsliðsþjálf­ari eigi jafn góð og hrein­skiln­is­leg sam­skipti við fjöl­miðla eins og við. �?g ef­ast einnig um að nokk­urs staðar í heim­in­um séu jafn góðir stuðnings­menn,�?? sagði Heim­ir og bætti við. �??Við vit­um al­veg hvað Lars (Lag­er­bäck) gaf okk­ur. Hann kom með ákveðna hugs­un inn í þetta hjá okk­ur. Hann kom hingað með 30-40 ára reynslu. Auðvitað á hann stór­an þátt í þessu. Á end­an­um verðum við all­ir dæmd­ir af sög­unni. �?annig er það í líf­inu.�??
Heim­ir var sér­stak­lega spurður út í Gylfa �?ór Sig­urðsson og Aron Ein­ar Gunn­ars­son sem hafa dregið vagn­inn á miðjunni í landsliðinu síðustu árin.
�??Við erum með leik­menn sem eru af­burða á sínu sviði. Ef við tök­um Gylfa sem dæmi þá er hann einn af okk­ar allra þekkt­ustu leik­mönn­um. Skor­ar mikið og legg­ur mikið upp. Er oft í sviðsljós­inu. Slík­ir leik­menn eru stund­um lúx­us leik­menn. En Gylfi legg­ur sig lík­leg­ast mest fram af öll­um í landsliðinu. Hann end­ur­spegl­ar allt sem við vilj­um að leik­menn okk­ar hafi. �?ll lið í heim­in­um vilja hafa leik­mann sem er til­bú­inn að fórna öllu til að liðið geti unnið. All­ir myndu því vilja hafa mann eins og Aron Ein­ar. Hann er til­bú­inn að setja and­litið í takk­ana ef það verður til þess að sam­herji skori eða kom­ist í fyr­ir­sagn­irn­ar. Við eig­um fullt af slík­um mönn­um sem leggja mikið á sig þótt þeir fái ekki at­hygl­ina. Menn eins og Jón Daði og Birk­ir Bjarna eru vinnu­dýr. �?að sem ger­ir Aron Ein­ar að ein­stakri per­sónu er hversu mikið hann er til­bú­inn að leggja á sig fyr­ir aðra.�??
Heim­ir kallaði ít­rekað eft­ir því í undan­keppn­inni að Íslend­ing­ar færu ekki fram úr sér þrátt fyr­ir vel­gengn­ina. Talaði þar til fjöl­miðla og hins al­menna stuðnings­manns.
�??�?g held að úr­slit­in sýni að þetta virkaði. Við töluðum ekki niður til and­stæðing­anna. Ef maður ger­ir þá er maður far­inn að of­meta sjálf­an sig. Við erum ánægðir með hvernig við nálguðumst þessa hluti. Við unn­um mikla vinnu við að leik­greina and­stæðing­ana með mönn­um eins og Arn­ari Bill og Frey Al­ex­and­ers­syni. Hinn al­menni knatt­spyrnu­áhugamaður spil­ar kannski fót­bolta í Play Stati­on. Ef þú tap­ar fyr­ir Kósóvó í raun­veru­leik­an­um þá er ekki hægt að rest­arta og spila leik­inn aft­ur.�??

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.