
Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV hefur gengið vel og stefnt er að því að ferjan sigli heim til Vestmannaeyja í kvöld og fari í fulla átta ferða áætlun á morgun, fimmtudag. Prufusigling fór fram í gærkvöldi og gekk hún mjög vel.
Þetta kemur fram í svari Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf., við fyrirspurn Eyjafrétta um gang viðgerðarinnar.
„Verkið hefur gengið mjög vel. Við reiknuðum okkur allt að fjóra sólarhringa í verkið. Mótorinn var settur í í gær og var farin prufusigling í gærkvöldi sem gekk mjög vel,“ segir Ólafur Jóhann.
Nú er unnið að lokafrágangi og stefnt að því að Herjólfur sigli heim í kvöld. Ferjan taki síðan við fullri átta ferða áætlun á morgun.
Baldur, sem hefur sinnt siglingum milli lands og Eyja á meðan Herjólfur hefur verið í viðgerðarstoppi, heldur aftur til Breiðafjarðar að lokinni áætlun dagsins í dag.
Eyjafréttir spurðu bæði Herjólf ohf. og Vegagerðina út í stöðu varamótora fyrir Herjólf IV og hvort tryggt yrði að hægt væri að bregðast hraðar við ef sambærileg bilun kæmi upp aftur.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að tveir nýir mótorar hafi verið pantaðir til að eiga til vara. Mótorarnir séu ekki lagervara og því sé afhendingartími þeirra nokkrir mánuðir.
Ólafur Jóhann staðfestir jafnframt að mótorarnir séu sérframleiddir. Þá bendir hann á að tveir slíkir rafmótorar séu um borð í Herjólfi og að þeir séu ekki eins.
„Nú eru þrír og hálfur mánuður síðan bilunin kom upp og það er öllum ljóst að svona aðstæður mega aldrei koma upp aftur. Því var ákveðið þegar í stað að kaupa mótora til þess að hafa tiltæka ef bilun kemur upp. Þá tekur það ekki nema fáa daga að skipta um,“ segir Ólafur Jóhann.
Með því að hafa báða mótorana tiltæka ætti því að vera hægt að bregðast mun hraðar við ef sambærileg bilun kemur upp í framtíðinni og stytta þann tíma sem Herjólfur yrði frá siglingum.
