Hermann hættur
DSC_0431
Hermann Hreiðarsson. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Hermann Hreiðarsson þjálfari meistaraflokks ÍBV til þriggja ára hefur ákveðið að láta af þjálfun hjá félaginu. Stjórn knattspyrnudeildar hefur átt gott samstarf með Hermanni undanfarin ár og var eindreginn vilji stjórnarinnar að halda því samstarfi áfram.  Breytingar eru hins vegar að verða á búsetu Hermanns og hans fjölskyldu og því hans mat að hann hafi ekki tök á að halda áfram sem þjálfari liðsins.

Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Hermanni og hans fjölskyldu fyrir góða tíma í Eyjum undanfarin 3 ár og framlag hans nú sem áður til félagsins, og óskar Hermanni velfarnaðar í því starfi sem hann tekur að sér, segir í tilkynningu frá stjórn knattspyrnudeildar ÍBV.

Nýjustu fréttir

Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.