HK átti aldrei möguleika
Kvennalið ÍBV í handbolta vann nokkuð þægilegan sigur á HK í dag í Eyjum en lokatölur urðu 30:22. Staðan í hálfleik var 15:11 en Eyjaliðið hafði góð tök á vellinum allan tímann og HK ógnaði í raun aldrei forystu ÍBV að neinu ráði. Mestur varð munurinn tíu mörk en ÍBV komst m.a. í 30:20 en gestirnir skoruðu síðustu tvö mörk leiksins. �?að var gaman að sjá ungu stelpurnar spila í dag en þær fá næg tækifæri hjá þeim Svavari Vignissyni og Jóni Gunnlaugi Viggóssyni. �?annig átti Erla Rós Sigmarsdóttir flotta innkom í mark ÍBV í leiknum en hún gerði sér lítið fyrir og varði þrjú vítaköst og sjö skot alls í leiknum. Markvarsla ÍBV var annars til mikillar fyrirmyndar í dag en Dröfn Haraldsdóttir varði 16 skot og vörðu markverðir ÍBV því samanlagt 23 skot og þrjú vítaskot. �?á vakti það athygli að Svava Tara �?lafsdóttir lék með ÍBV í dag en hún hefur undanfarin ár verið í fótboltaliði ÍBV en þótti afar efnileg bæði í fótbolta og handbolta.
ÍBV er eftir leikinn í fjórða sæti með átta stig. Grótta er í þriðja sæti með níu stig, þá Valur með ellefu stig og Stjarnan er efst með tólf. Fram, er í fimmta sæti með sex stig en eiga leik til góða og geta því komist upp að hlið ÍBV.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 10, Telma Amado 5, Ester �?skarsdóttir 4, Drífa �?orvaldsdóttir 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 1, Kristrún Hlynsdóttir 1, Sandar Gísladóttir 1, Arnar �?yrí �?lafsdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 16, Erla Rós Sigmarsdóttir 7/3.
Myndir úr leiknum verða settar inn síðar í dag.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.