Hljómsveitin Skarkali á Slippnum í kvöld
Tónleikar Skarkala tríósins á Slippnum í kvöld eru þeir fimmtu í tónleikaröðinni, tónlist á miðvikudögum þar sem valinkunnir listamenn hafa mætt og skemmt gestum. Skarkali tríó var stofnað sumarið 2013 og flytur frumsamda jazztónlist eftir píanóleikarann Inga Bjarna þar sem fjölbreytnin er höfð í fyrirrúmi. �??Fágaður bassaleikur Valdimars og kraftmikill trommuleikur �?skars setja tónlistina á hærra plan,�?? segir í umsögnum um tónlist þremenn- inganna sem hafa gefið út sína fyrstu plötu sem heitir einfaldlega Skarkali. Á henni eru níu frum- samin lög í fjölbreyttum �??jazz�?? útsetningum. �??Á tónleikunum á Slippnum munum við að sjálfsögðu flytja lög af plötunni, kannski slæðist annað efni með. Við erum fullir eftirvænt- ingar og vonumst til að tónleika- gestir skemmti sér vel,�?? sagði Ingi Bjarni við Eyjafréttir.
Frábært að geta boðið upp á gæðatónleika
Tónleikaröðin er unnin í samstarfi við tónlistarmanninn Skúla mennska. �??Skúli tók að sér að velja saman hæfileikaríka og vandaða tónlistarmenn og hljómsveitir sem eru að gera frábæra hluti. �?t frá tónleikaröðinni spinnast svo fleiri tónleikaferðalög um landið en fasti punkturinn er alltaf á Slippnum annað hvert miðvikudagskvöld,�?? sagði Indíana Auðunsdóttir, framkvæmdastjóri Slippsins. �??Okkur á Slippnum finnst frábært að geta boðið upp á gæðatónleika af þessu tagi. �?að er almennt svo mikið um að vera um helgar í Eyjum en einhvern veginn hefur verið lítið um menningarviðburði sem þessa á virkum kvöldum. Við viljum endilega sjá kúltúrinn hér þróast þannig að fólk hafi tækifæri á að njóta góðrar tónlistar í miðri viku. Við viljum sérstaklega hvetja allt tónlistarfólkið á eyjunni og auðvitað Eyjamenn alla til að mæta. Tónleikarnir byrja alltaf klukkan tíu og frítt inn í boði Slippsins,�?? sagði Indíana.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.