Hlynur stefnir á sigur um helgina
Hlynur Andrésson sigurvegari síðustu þriggja ára í hálfu maraþoni karla í Reykjavíkurmaraþoni stefnir ótrauður á sigur um næstu helgi fjórða árið í röð. Hlynur hefur á þessu ári sett Íslandsmet í þremur hlaupagreinum utanhúss, ruv.is greindi frá.
Hlynur Andrésson bætti í mars Íslandsmet Kára Steins Karlssonar í 10.000 metra hlaupi á braut þegar hann hljóp á 29 mínútum og 20,92 sekúndum á háskólamóti í Bandaríkjunum. Hann hefur svo bætt Íslandsmetin bæði 5.000 og í 3.000 metra hindrunarhlaupi að auki á árinu.

Erfitt að leiða hlaupið

Hlynur var aðeins fjórum sekúndum frá því að ná lágmarki inn á Evrópumótið sem nú stendur yfir í 3.000 metra hindrunarhlaupi, en krefjandi mastersnám kom í veg fyrir það. Hann er hins vegar á leið í míluhlaup í Bretlandi í dag og ætlar svo að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoni á laugardag.

„Þetta er reyndar fjórða skiptið í röð sem ég ætla að reyna sigra. Og vonast eftir góðum tíma og skemmtilegri stemmingu, bara gaman,“ sagði Hlynur þegar RÚV hitti hann á föstudag.

Spurður út í brautina í Reykjavíkurmaraþoninu segir Hlynur hana góða. „Brautin er mjög fín en það sem hefur verið erfiðara fyrir mig er að vera alveg einn að hlaupa allan tímann, í botni. Það er svolítið erfitt andlega að ýta allan tímann sjálfur en ég vona að tíminn verði góður í þetta skiptið.“

Hægt er að hlusta á viðtalið við Hlyn hjá RÚV hérna.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.