Hólmfríður selur landsliðstreyju sína á uppboði til styrktar Kolfinnu Ránar
Nú eru aðeins fjórir dagar eftir af uppboðinu á landsliðstreyju Hólmfríðar Magnúsdóttur sem hún klæddist í sínum 100. landsleik en hæsta boð er 300.000 íslenskar krónu.
Í fréttatilkynningu sem Hólmfríður sendi Eyjafréttum skorar hún á fyritæki að bjóða í treyjuna.
Kolfinna Rán er rúmlega 2 og ½ árs framtíðar fótboltastelpa sem greindist með krabbamein í júni nú í sumar. Kolfinna er dóttir Olgu og Pálu sem ég lék knattspyrnu með. Olga var mín fyrirmynd í knattspyrnunni þegar ég byrjaði að spila og náðum við að spila saman í tveimur félagsliðum meðal annars ÍBV og íslenska landsliðinu.
�?ær Olga og Pála hafa ávallt verið til staðar fyrir mig og nú vil ég vera til staðar fyrir þær. Báðar hafa þær verið frá vinnu vegna verkefnisins sem fjölskyldan glímir nú við og því vil ég leggja mitt af mörkum til að styrkja þær.
�?g hef því ákveðið að bjóða upp landsliðstreyjuna mína, treyjuna sem ég klæddist í mínum 100. landsleik fyrir Ísland fyrir skömmu.
Treyjan er árituð af öllum leikmönnum kvennalandsliðsins.
Allur ágóði mun renna til fjölskyldu Kolfinnu Ránar.
Ásamt treyjunni ætlar Stefán Hilmarsson að gefa 2 miða á jólatónleikana sem fara fram í Silfurbergi Hörpu 16.desember.
sendið mér tölvupóst á netfangið fridamagg84@gmail.com (Nafnleynd lofað ef óskað er)
uppboðinu lýkur 1.desember 2015 kl.18.
Viðbótarupplýsingar: �?g hef fengið nokkrar fyrirspurnir frá fólki um reikning sem hægt er að leggja inn á fyrir þá sem vilja styrkja Kolfinnu Rán og fjölskyldu.
Hérna eru reikningsupplýsingar:
Reiknr: 0545-14-406567
Kt.190113-2210 🙂

Nýjustu fréttir

Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.