HSU Vm �?? Kvenfélagið Líkn gaf tæki fyrir tíu milljónir
Í gær veitti framkvæmdastjórn HSU viðtöku höfðinglegri gjöf frá Kvenfélaginu Líkn í Vestamannaeyjum, alls að verðmæti um 10.000.000 kr. Um er að ræða vöktunartæki fyrir lífsmörk sjúklinga, ásamt varðstöð, sem er gjöf til sjúkradeildar Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. Tækin samanstanda af vöktunarstöðvum sem auðvelda fagfólki sjúkrahússins að fylgjast af betri nákvæmni og öryggi með ástandi sjúklinga.
�?etta kemur fram á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hsu.is sem Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU skrifar. �?ar kemur fram að um sé að ræða svo kölluð monitor tæki sem eru öllu jöfnu eru föst við rúmstæði sjúklings en eru með minni ferða monitor fyrir flutning sjúklinga. �?essi tæki mæla blóðþrýsting, líkamshita, öndun, súrefnismettun, púls og hjartsláttarrit. Einng voru gefin svo kallaðar telemetriur með skjá sem sýna púls, hjartsláttarrit og súrefnismettun sjúklings. �?ll þessi tæki tengjast svo varðstöð á vakt lyflækningadeildarinnar þar sem hægt er að fylgjast vel með sjúklingum. Auk þess senda tækin merki og viðvaranir í snjallsíma eða píptæki hjúkrunarfræðings eða læknis á vakt. Tækin eru nettengd og senda milli sín þráðlausar upplýsingar.
Kvenfélagið afhenti einnig framkvæmdastjórn HSU hormónarannsóknartæki til rannasóknastofunnar í Vestmannaeyjum. Tækið er nauðsynlegt til að framkvæma ákveðnar mælingar í blóði og eitt af grunntækjum í rekstri rannasóknarstofa.
�??�?ví eru um að ræða nauðsynleg tæki til starfseminnar. Fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er félagskonum í Kvenfélaginu Líkn færðar hugheilar þakkir fyrir höfðinglegt framlag og mikilvæga gjöf til starfsemi HSU. �?metanlegt er að finna þann hlýhug sem gjöfinni fylgir, sem er mikil hvatning og styrkur fyrir heilbrigðisstarfsmenn á HSU,�?? segir Herdís í lokaorðum sínum.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.