Humar í fyrsta sinn á Matey
Gestir Matey fá í ár í fyrsta sinn tækifæri til að njóta humars frá Vinnslustöðinni – einstakt hráefni úr könnunarveiðum sem fóru fram fyrr í maí. Ljósmynd: Matey/Karl Petersson

Matey er handan við hornið og framundan er helgi þar sem sjávarfang, matarmenning og eyjastemning verða í forgrunni. Á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um þátt fyrirtækisins í hátíðinni, en VSV er meðal styrktaraðila og leggur jafnframt til hráefni fyrir viðburðina. Grípum niður í umfjöllunina.

Sjávarréttahátíðin Matey hefur á undanförnum árum skapað sér sérstakan sess í menningarlífi Vestmannaeyja og orðið vettvangur þar sem matur, fólk og upplifun mætast. Hátíðin er jafnframt gott dæmi um hvað verður til þegar fyrirtæki, einstaklingar og samfélagið vinna saman að sameiginlegu markmiði.

Afli úr könnunarveiðunum

Vinnslustöðin er meðal styrktaraðila Matey og leggur jafnframt til hráefni sem nýtist í fjölbreyttum matargerðarviðburðum hátíðarinnar. Góð hráefni eru grunnur að góðri upplifun og þar skiptir samstarf við sjávarútveginn miklu máli.

Að þessu sinni verður í boði humar frá Vinnslustöðinni, í fyrsta sinn frá upphafi Mateyjar. Humarinn er afli úr könnunarveiðum sem fóru fram nú í byrjun maí. Eins og kunnugt er hefur verið humarveiðibann, vegna lítillar nýliðunar síðan 2021. Nú eru sterkar vísbendingar um bata humarstofnsins og er það mikið fagnaðarefni.

Í Vinnslustöðinni er lögð áhersla á að styðja verkefni sem efla samfélagið, skapa verðmæti og draga fram það besta sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.

Tengir saman fólk og staðbundin verðmæti

Matey hefur frá upphafi byggt á þeirri hugsun að tengja saman staðbundin verðmæti, matarmenningu og þá fjölmörgu aðila sem koma að því að skapa einstaka upplifun fyrir gesti. Á hátíðinni gefst tækifæri til að njóta fjölbreyttrar dagskrár, kynnast skapandi matargerð og upplifa þá stemningu sem einkennir Vestmannaeyjar.

Það er því vel við hæfi að hvetja bæði Eyjamenn og gesti til að tryggja sér sæti og taka þátt í hátíðinni.

Hátíðin verður haldin næstkomandi föstudag og laugardag og er mælt með að áhugasamir panti borð tímanlega og taki þátt í Matey – þar sem bragð, upplifun og samfélag mætast.

Nánari upplýsingar og borðapantanir eru á vefsíðu hátíðarinnar. Fleiri myndir og myndband má sjá á fréttasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Humar frá Vinnslustöðinni verður á boðstólnum á Matey í fyrsta sinn.

 

Nýjustu fréttir

Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.