Humarvertíðin hafin en fátt um gleðitíðindi

Nýlega hafin humarvertíð er tíðindalítil eins og gera mátti ráð fyrir þegar bágt ástand stofnsins er haft í huga. Fyrsta humri ársins hjá VSV var landað úr Brynjólfi VE föstudaginn 8. maí og Drangavík VE er sömuleiðis á humarveiðum. Bátarnir hafa verið í Skeiðarárdýpi fyrstu daga vertíðarinnar.

Humarstofninn er lélegur og líkt og fyrra gaf Hafrannsóknastofnun út lágmarkskvóta í vísindaskyni til að fylgjast með heilsufari stofnsins. Hvar veiðist humar og í hve miklum mæli? Ber eitthvað á smáhumri í afla sem jafngilti vonarglætu til framtíðar?

Í gögnum Hafrannsóknarstofnunar kemur fram að nýliðun skortir í humarstofninum. Það tengist hvorki veiðum né veiðarfærum heldur einhverjum aðstæðum í lífríki sjávarins. Ýmsar kenningar eru á lofti um ástæður en vísindalegar skýringar skortir.

Við óvissu um afrakstur sjálfra bætist svo óvissuástand á humarmörkuðum vegna kórónuveirufaraldursins, segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu VSV.

„Þorlákshafnarmenn og Hornfirðingar byrja yfirleitt á undan okkur Eyjamönnum í humrinum, í mars eða apríl. Vertíðin hefst á austursvæðinu, frá Hornafjarðardýpi að Skeiðarárdýpi og færist svo vestar þegar líður á vorið og fram á sumar.

Undanfarin ár hefur mest veiðst við Eldey og humar er veiddur líka í Jökuldýpi en þar er nú lokað vegna verndaraðgerða. Lónsdýpi er sömuleiðis okað og svæði á Breiðamerkurdýpi. Hér við Eyjar hefur sama og ekkert veiðst af humri í mörg ár.

Nýliðun skortir í humarstofninum, hverju svo sem um er að kenna í umhverfinu. Eingöngu hefur veiðst stór humar undanfarin ár en nú kemur fyrir að smár humar fáist líka. Það gefur veika von um skárri tíð en við þurfum fleiri og skýrari vísbendingar og mun meiri gögn til að byggja á og draga af ályktanir.

Vinnslustöðin selur heilfrystan humar til Spánar og humarhala á markaði víða á meginlandi Evrópu. Nú eru veitingahús lokuð vegna kórónuveirunnar á mestöllu meginlandinu og engin spurn eftir humri. Við veiðum því og framleiðum eftir hendinni og reynum að spila úr þeim markaðsfærum sem gefast þegar faraldrinum linnir og lífið færist í fyrra horf, þar á meðal í veitingahúsarekstri.“

Nýjustu fréttir

„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.