Hvatt til hreinsunarátaks – Má gera betur

„Í sumar eru eins og flestum er kunnugt 50 ár frá lokum Heimaeyjargossins. Á hverju ári er haldin goslokahátíð að því tilefni og verður þar engin undantekning í ár nema að þessu sinni verður hátíðin viðburðameiri,“ segir í síðustu fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs sem leggur til  að efnt verði til umhverfis- og hreinsunarátaks meðal íbúa og fyrirtækja að því markmiði að snyrta og fegra bæinn og sitt nærumhverfi fyrir þessi stóru tímamót.

Ráðið hvetur íbúa og fyrirtæki til að snyrta lóðir sínar, fasteignir og nærliggjandi umhverfi.

Einnig felur ráðið umhverfisfulltrúa að hafa samband við fyrirtæki sem selja garðáhöld, byggingar- og málningarvörur varðandi að veita afslætti og skapa þannig hvata fyrir íbúa til þátttöku.

Orð í tíma tölu því þó umgengni sé yfirleitt góð á Heimaey er á nokkrum stöðum pottur brotinn.

 

Nýjustu fréttir

Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.