Hvernig á manni eiginlega að líða þegar markmiðin nást og draumar manns rætast?
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, tryggði sér í fyrsta skiptið þátttökurétt á HM þegar liðið lagði Kósóvó að velli á mánudaginn. �?ar sem íslenska liðið hafði sigrað Tyrkland með þremur mörkum gegn engu á föstudaginn þá voru örlög þeirra íslensku algjörlega í þeirra höndum í lokaumferðinni því Króatar gerðu einungis jafntefli gegn Finnlandi á sama tíma. �?ó svo þeir íslensku hafi ekki náð að sýna sínar bestu hliðar líkt og í leiknum úti í Tyrklandi, kom það ekki að sök því mörk frá Gylfa �?ór Sigurðssyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni tryggðu farseðilinn á HM sem fram fer í Rússlands á næsta ári.
�?svikinn fögnuður leikmanna, þjálfara og ekki síst áhorfenda þegar flautan gall eftir rúmar 90 mínútur bar þess merki að eitthvað sérstakt hafði átt sér stað. Hinu fámenna eyríki lengst norður í Atlantshafi hafði tekist hið ómögulega og fylgt eftir ótrúlegum árangri á EM árið áður, árangri sem margir efuðust um að yrði komist nálægt í náinni framtíð.
Með elju, skipulagi og liðsheild, sem á sér fáar hliðstæður, tókst Heimi Hallgrímssyni að láta íslenska landsliðið taka enn eitt skrefið fram á við og koma liðinu á stall með fremstu knattspyrnuþjóðum heims. Jafnframt er Ísland nú fámennasta þjóð í sögu HM til að tryggja sér þátttökurétt en áður var það Trínidad og Tóbagó en þar búa um 1.3 milljónir manna.
Á blaðamannafundi eftir leik var Heimir að vonum sáttur og hrósaði hann samheldni þjóðarinnar og starfsliðinu í hástert. �??�?etta er hópvinna, allt starfsliðið á svo stóran þátt í þessu. �?að er ekki neinn einn þó ég eigi lokaorðið þegar við höfum rifist í klukkutíma. �?etta er ofboðslega mikil samvinna, þannig held ég að Ísland geti unnið. Við vinnum þetta saman,�?? sagði Heimir og hélt áfram á svipuðum nótum. �??�?g efast um að nokkur landsliðsþjálfari eigi í jafn góðu sambandi við fjölmiðla, hreinskilið samband. Svo efast ég um að annað landslið eigi jafn góða stuðningsmenn.�??
Með nýju móti koma ný markmið
�?rátt fyrir léttvægan hausverk eftir fögnuðinn eftir leik var Heimir enn í skýjunum þegar blaðamaður Eyjafrétta sló á þráðinn til hans daginn eftir. �??Fyrir utan hausverkinn eftir gærkvöldið þá held ég að það sé ekki hægt að líða betur. Hvernig á manni eiginlega að líða þegar markmiðin nást og draumar manns rætast? �?etta er náttúrulega fyrst og fremst stórkostlegt.�??
Hvernig fannst þér leikurinn spilast? �??�?að voru allir hræddir við að gera mistök, það vildi enginn vera sá gæi, bæði sóknarlega og varnarlega. En við gerðum allavega eitthvað rétt og kláruðum leikinn nokkuð solid,�?? segir Heimir.
Aðspurður hvenær væri tímabært að setja sér ný markmið, í ljósi þess að fyrri markmiðum hafði verið náð, sagðist Heimir ætla að gefa sér smá tíma til að jafna sig. �??�?að verður bara þegar maður er búinn að jafna sig.
�?að er svo sem auðvelt fyrir íþróttmenn að setja sér markmið, nú kemur bara nýtt mót og þá koma ný markmið.�??

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.