ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Birna Berg Haraldsdóttir í leik gegn Haukum í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta vann mikilvægan 26:29 sigur á ÍR í 13. umferð Olís deildar kvenna, í Skógarseli í kvöld. ÍR konur skoruðu fyrsta mark leiksins en jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar. Þegar stundarfjórðungur var liðinn var staðan jöfn, 6:6. Eyjakonur náðu hins vegar upp forystunni og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 11:16. Matthildur Lilja Jónsdóttir, leikmaður ÍR, fékk að líta beint rautt spjald á 27. mínútu leiksins eftir brot á Söndru Erlingsdóttur.

ÍR konur byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og voru búnar að jafna leikinn eftir tíu mínútur í 19:19. Eyjakonur reyndust sterkari síðustu 20 mínútur leiksins og unnu öruggan þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 26:29. Eftir 13 umferðir er ÍBV á toppnum með 22 stig, tveimur stigum meira en Valur en Valskonur eiga leik til góða. ÍR er í 3. sæti með 14 stig.

Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í leiknum ásamt Söru Dögg Hjaltadóttur, leikmanni ÍR, með níu mörk. Amalia Frøland varði fimm skot í marki ÍBV og Ólöf María Bjarnadóttir tvö. 

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 9 mörk, Sandra Erlingsdóttir 7, Birna María Unnarsdóttir 5, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 1, Ásta Björt Júlíusdóttir 1.

Í næstu umferð er sannkallaður stórleikur þegar ÍBV tekur á móti Val, sunnudaginn 25. janúar kl. 14:00.

 

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.