ÍBV sektað
ksi_bolti
Samsett mynd

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ birti í dag úrskurði úr agamálum og voru alls fimm félög sektuð vegna framkomu áhorfenda. Þrjú félagana eru í Lengjudeild karla, þar á meðal er ÍBV. Sektað er vegna þess að stuðningsmenn liðsins kveiktu á blysum eftir sigur ÍBV á Fjölni á útivelli þann 9. ágúst sl.

Í úrskurðinum er snýr að ÍBV segir m.a. „Að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna er það álit aga- og úrskurðarnefndar að framkoma áhorfenda ÍBV, er kveikt var á blysum í áhorfendastúku, hafi verið vítaverð. Samkvæmt því fellur framkoma áhorfenda ÍBV undir grein 13.9.d) reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál. Með vísan til framangreinds ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að sekta knattspyrnudeild ÍBV vegna framkomu áhorfenda eftir leik liðsins við Fjölni í Lengjudeild karla. Þykir upphæð sektar knattspyrnudeildar ÍBV hæfilega ákveðin kr. 50.000,-.“

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.