ÍBV sigraði hollensku meistarana í æfingaleik
Mynd tekin í ferðinni. Mynd/ÍBV handbolti

Karlalið ÍBV í handbolta er um þessar mundir statt í æfingaferð í Hollandi, sem er liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil í Olís deild karla.

Í gærkvöldi spilaði liðið æfingaleik við hollensku meistarana í Volendam í fyrsta leik ferðarinnar. Leiknum lauk með 29-35 sigri ÍBV. 

Mörk ÍBV: Sveinn José Rivera 8 mörk, Dagur Arnarsson 7, Daníel Ingason 4, Sigtryggur Daði Rúnarsson 4, Kristófer Bárðarson 4, Anton Frans Sigurðsson 3, Atli Steinn Arnarson 2, Haukur Leó Magnússon 2 og Benóný Þór Benónýsson 1.

Alls leikur liðið fjóra leiki í ferðinni, gegn Volendam A og B liði, bandaríska landsliðinu og hollensku liði sem heitir Aalsmeer.

Nýjustu fréttir

Arnór öflugur í tapi Karlskrona
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar – varað við óhagstæðri spá
Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í október
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudag
Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.