ÍBV tekur á móti Fylki
Í dag klukkan 13:30 tekur kvennalið IBV á móti Fylki í Olísdeildinni. ÍBV tapaði síðasta leik sínum á útivelli gegn Gróttu en liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 8 stig eftir 7 leiki. ÍBV getur skotist upp í fjórða sætið með sigri í dag en þar er Fram með 10 stig. ÍBV hefur hins vegar betur í innbyrðis viðureign liðanna og hirðir því fjórða sætið með sigri. Fylkir er hins vegar í tíuna sæti deildarinnar með 4 stig. Liðið kom nokkuð á óvart í byrjun móts með því að vinna fyrstu tvo leiki sína, gegn Aftureldingu og Gróttu en hefur síðan þá tapað fimm leikjum í röð.
Á sama tíma, eða klukkan 13:30 sækir ÍBV Val heim í Olísdeild karla. Eyjamenn eru í þriðja sæti með 8 stig, eins og Fram og ÍR en Eyjamenn eiga leik til góða. Með sigri kemst ÍBV aftur upp að hlið Hauka, sem eru á toppi deildarinnar með 10 stig en í öðru sæti er FH með 9 stig. Valur er hins vegar í sjötta sæti með 6 stig eftir sex leiki.
Körfuknattleikslið ÍBV tekur svo á móti Ármanni í 2. deildinni í körfubolta en leikur liðanna hefst klukkan 15:45. Liðin tvö eru á toppi A-riðils með fullt hús stiga og verður því væntanlega hart barist í leiknum í dag.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.