ÍBV upp í 3. sæti
ÍBV lagði Selfoss að velli á Hásteinsvelli í kvöld en lokatölur urðu 3:0. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik þar sem Eyjakonur voru mun sterkari og hefðu í raun getað skorað fleiri mörk. Síðari hálfleikur var hins vegar jafnari og fengu bæði lið færi en mörkin urðu ekki fleiri. Með sigrinum komst ÍBV hins vegar upp að hlið Breiðabliks, sem er í öðru sæti en með betri markatölu en ÍBV. Bæði Breiðablik og Valur töpuðu sínum leikjum í kvöld en Valur er í fjórða sæti, stigi minna en ÍBV og Breiðablik. Baráttan um silfrið harðnaði því til muna í kvöld.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.